Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins kallar Jón Hilmar Hallgrímsson „vitgrannt vöðvatröll“, „ógæfumann“ og „sterabuff“ í leiðara blaðsins í dag. Ólafur gerir viðtal sem birtist í Menntatíðindum, skólablaði Menntaskólans í Reykjavík að umfjöllunarefni sínu í leiðara blaðsins og er titill leiðarans „Glamúrviðtöl við gangstera“. DV fjallaði um viðtalið í vikunni, og rektor MR hefur beðist afsökunar á viðtalinu.
„Foreldrar nemenda í Menntaskólanum í Reykjavík kvörtuðu réttilega yfir því að í Menntaskólatíðindum skólafélagsins skyldi birtast viðtal við vitgrannt vöðvatröll, sem komið hefur við sögu eiturlyfjasölu og -neyzlu, handrukkana, líkamsmeiðinga og hótana og er grunað um tengsl við skipulagða glæpastarfsemi,“ segir Ólafur í leiðaranum.
Hann segir að lífsstíll og lífsviðhorf undirheimamannanna eigi ekki heima í „glamúrviðtölum“ og segir að lesendur geti átt erfitt með það að átta sig á því að lífstíll þeirra sé varúðarverður. Hann tekur sem dæmi í viðtalinu í MR blaðinu hafi Jón sjálfur sagt að einhverstaðar á lífsleiðinni hafi hann ákveðið að hann ætlaði sér að verða „krimmi“. Því sé ekki hægt að gera ráð fyrir því að allir geti lesið á milli línanna þegar slík mál eru til umfjöllunar.
Ólafur segir að ekkert spennandi sé við Jón eða aðra viðmælendur ,sem að þrífist einhversstaðar á mörkum hins ólöglega við handrukkun, gengjamyndun eða súlustaðarekstur. „Grobbsögurnar, grunnvitur lífsspekin, kvenfyrirlitningin og allt hitt bullið sem vellur upp úr þeim á hvorki heima á síðum skólablaðs né í alvöru fjölmiðlum,“ skrifar Ólafur.
Segist ekki vera ógæfumaður
Sjálfur svarar Jón H. Hallgrímsson, Ólaf,i á Facebook síðu sinni. Jón segir að Ólafur átti sig ekki á því að fólk heillist af glæpamönnum. Máli sínu til stuðning nefnir Jón meðal annars Al Capone og Ítölsku mafíuna. Hann er einnig ósáttur við það að Ólafur kalli sig „ógæfumann“ og segir Jón að hann búi líklegast í stærra húsi og eigi fleiri bíla en Ólafur. Hann segist þar að auki ekki hafa mætt til vinnu í áratug, heldur hafi hann getað starfað sjálfstætt. Í viðtalinu við MR blaðið sagðist Jón starfa við innheimtu og að hann fengi allt að fimmtíu þúsund krónur fyrir hvert símtal.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
