Talsvert fleiri vilja að Hanna Birna Kristjánsdóttir verði formaður Sjálfstæðisflokksins í stað Bjarna Benediktssonar, núverandi formanns flokksins. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert. Af þeim sem tóku afstöðu voru 58,6 prósent sem heldur vildu sjá Hönnu Birnu sem formann flokksins en Bjarna.Rúmlega 13 prósent studdu Bjarna.
Munurinn er svipaður sé litið til þeirra sem sögðust styðja Sjálfstæðisflokkinn í könnunni. Af stuðningsmönnum flokksins vildu 66,3 prósent að Hanna Birna yrði næsti formaður flokksins en 26,4 prósent vildu sjá Bjarna áfram sem formaður. Það voru ekki nema 7,3 prósent sem vildu að hvorugt þeirra yrði formaður flokksins eftir næsta flokksþing.
Stuðningsmenn annarra flokka á Alþingi eru sammála Sjálfstæðismönnum. Vilja stuðningsmenn Vinstri grænna, Samfylkingarinnar og Framsóknarflokks í flestum tilfellum sjá Hönnu Birnu sem formann flokksins frekar en Bjarna. Hægt er að skoða niðurstöður könnunar MMR í heild sinni hér.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
