Fær ekki pláss. Dóttir Davíðs er fædd í janúar árið 2010 og verður því tveggja ára í byrjun næsta árs. Hún fær hins vegar ekki inni á leikskóla fyrr en næsta haust. Þá tæplega þriggja ára.
„Mér reiknast til að við þurfum að borga um 30 þúsund krónum meira á mánuði heldur en barnið sem var næstum því á fæðingarstofunni á sama tíma,“ segir Davíð Unnsteinsson, þriggja barna fjölskyldufaðir í Norðlingaholti. Hann á dóttur sem er fædd 12. janúar árið 2010 og verður því tveggja ára í byrjun næsta árs. Stúlkan fær þó ekki inni á leikskóla fyrr en haustið 2012, þá tæplega 3 ára gömul. Er þetta vegna þess að eingöngu börn fædd árið 2009, og verða tveggja ára á þessu ári, fá inni á leikskólum Reykjavíkurborgar núna í haust. Hefði stúlkan hinsvegar fæðst tveimur vikum fyrir tímann væri hún að öllum líkindum komin með leikskólapláss.
Kæmist inn ef þau skildu
„Maður þarf eiginlega að reikna þetta út áður en maður fer í barneignir,“ segir Davíð og slær á létta strengi. Hann segist alveg sætta sig við að stúlkan komist ekki inn á leikskóla strax en vill þá í staðinn að boðið sé upp á frekari niðurgreiðslur vegna dagmæðra, enda muni töluvert miklu á kostnaði við að vera með barn á leikskóla og hjá dagmömmu.
„Ef að við hjónin myndum skilja, því við erum með tvö önnur börn undir 9 ára, þá myndi stúlkan fá forgang og kæmist inn á leikskóla.“ Þau eru þó ekki alveg tilbúin til að ganga svo langt.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
