ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Hagnaður Landsbankans á við árstekjur 4 þúsund verkamanna

Mætti kaupa 8 nýja glerhjúpa á Hörpu fyrir hagnaðinn
18:01 › 14. september 2011
Glerhjúpur Hörpu kostaði 2,9 milljarða króna samkvæmt úttekt DV. Hagnaður Landsbankans dugar fyrir átta svoleiðis.

Glerhjúpur Hörpu kostaði 2,9 milljarða króna samkvæmt úttekt DV. Hagnaður Landsbankans dugar fyrir átta svoleiðis. Mynd: DV

Til að setja 24,4 milljarða króna hagnað Landsbankans á fyrstu sex mánuðum þessa árs í samhengi þá dugar sú upphæð til að greiða árstekjur fjögur þúsund verkamanna á Íslandi í dag.

Í úttekt DV í síðustu viku eftir að Arion banki hafði skilað 10,2 milljarða króna hagnaði á fyrri hluta ársins voru nokkur dæmi tekin til að setja afkomutöluna í samhengi. Þar kom fram að árstekjur tvö þúsund verkamanna væru samanlagt 10,5 milljarðar króna, að því gefnu að hver og einn þeirra væri með rúmlega 430 þúsund krónur í mánaðarlaun.

Árstekjur fjögur þúsund verkamanna væru því 21 milljarður króna, tæplega 3,5 milljörðum lægri en hagnaður Landsbankans nú.

Út frá sömu úttekt má sjá að það kostaði 3,2 milljarða að byggja Perluna í Reykjavík. Með hagnaði Landsbankans mætti því byggja rúmlega sjö stykki Perlur.

Glerhjúpur Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu mun hafa kostað 2,9 milljarða króna. Hagnaður Landsbankans dugar því til að hjúpa Hörpu gleri átta sinnum og rúmlega það.

Sjá einnig:

Landsbankinn valtar yfir aðra banka í hagnaði

Launakostnaður Landsbankans hækkar um 827 milljónir



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?