Fjöldi lögreglumanna, fjölmiðlamanna og meðlima Heimavarnarliðsins voru við Breiðagerði í gær Gunnar Gunnarsson
Lögreglan þurfti í gær að hafa afskipti af liðsmönnum Heimavarnarliðsins sem reyndu að stöðva útburð af heimili í Breiðagerði.
Á þriðja tug Heimavarnarmanna tóku á móti fulltrúum sýslumanns sem vildu komast inn í húsið.
Í þessu myndbandi má sjá orðaskipti lögreglumanna og Heimavarnarliðsins.
Samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum DV var útburðurinn algjört neyðarúrræði Arion banka. Kona sem bjó í húsinu hætti að greiða af lánum sínum nokkru fyrir hrun. Þrátt fyrir það hefur konan búið í húsinu sem er 350 fermetra einbýlishús. Hún hefur síðan haldið áfram að búa í húsinu eftir að bankinn leysti eignina til sín árið 2009. Samkvæmt öruggum upplýsingum DV hefur bankinn greitt öll gjöld af húsinu og konan því búið frítt í húsinu síðan í maí 2008.
Um hádegisbilið í gær var lásasmiður kallaður til að opna hurðina, þar sem konan var læst inni í húsinu og neitaði að koma út. Þá voru um átta lögreglubílar voru á staðnum sem og 10-15 háværir mótmælendur frá Heimavarnarliðinu auk fjölmiðlamanna. Konan átti samskipti við lögregluna í gegnum bréfalúguna en hún neitaði að láta bera sig út.
Hér má sjá mótmælendur og meðlimi Heimavarnarliðsins fjarlægða frá húsinu með lögregluvaldi.
Myndbandið er af Youtube reikningi
Konan var þó á endanum ekki borin út heldur ákvað fulltrúi sýslumanns að bíða eftir áliti frá Fjármálaeftirlitinu varðandi kvörtun konunnar til FME gagnvart Arion Banka. Konan telur að Arionbanki sé ekki lögmætur kröfuhafi. Hún segir að bankinn hafi upprunalega samið við KB-banka og að aðilaskiptum KB-banka og Arion-banka að kröfunni á hendur honum hafi ekki verið réttilega þinglýst.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
