ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Kínverjar vilja íslenskt vatn

Vilja flytja hundrað þúsund tonn af vatni út á ári
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:49 › 26. ágúst 2011

„Það voru bara menn sem komu hérna óvænt og voru að kynna sig og sitt fyrirtæki,“ segir Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, um fund sem hann átti með forsvarsmönnum kínverska fyrirtækisins Haichang Group síðastliðið vor.

Það vakti mikla athygli í vikunni þegar greint var frá því að kínverska fyrirtækið Zhongkun Group hefði mikinn áhuga á því að reisa fimm stjörnu glæsihótel á Grímsstöðum á fjöllum. Gunnólfur segist þó ekki vita til þess að einhver tengsl séu á milli mannanna sem hann hitti í vor og Zhongkun Group.

„Haichang Group er fyrirtæki sem er með allskonar starfsemi. Byggingastarfsemi, olíuskip og olíuhreinsunarstöðvar. Þeir komu hingað bara í þeim tilgangi til að athuga hvort að það væri hægt að kaupa vatn hérna á Langanesbyggð. Þetta var svona um það bil klukkutíma spjall,“ segir Gunnsteinn sem telur að þeir hafi verið á ferð um landið og átt fundi með nokkrum sveitarfélögum til þess að athuga hvort hægt sé að kaupa vatn hér á landi.

Hann segir engar frekari viðræður hafi átt sér stað við fyrirtækið að hálfu Langanesbyggðar. „Þeir eru að leita sér að einhverjum sem getur flutt út hundrað þúsund tonn af vatni og voru að athuga hvort að við gætum gert þetta. Þetta er bara eitthvað sem við þurfum að afla okkur upplýsingar um hvort við getum þetta eða ekki,“ segir Gunnólfur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?