Fundu ástina í öskusólsetri. Marcel og Lynali Keller hittust hittust fyrir tilviljun til að taka myndir af sólsetrinu í Zurich sem sveipað var öskumistri frá Eyjafjallajökli í fyrra. Þau giftu sig í mars og létu grafa nafn jökulsins í giftingahringana. Mynd: DV/Sigtryggur Ari
„Fyrir marga aðra þá var öskufallið frá jöklinum mikið böl en það reyndist blessun fyrir okkur,“ segir hin filippseyska Lynali Keller sem stödd var hér á landi í vikunni í einstakri pílagrímsferð ásamt eiginmanni sínum, Svisslendingnum Marcel Keller. Þau gerðu sér sérstaka ferð hingað til lands til að heimsækja mikinn áhrifavald í lífi þeirra beggja. Eyjafjallajökul.
Hjónin kynntust fyrir tilviljun þegar þau ætluðu bæði að taka ljósmyndir af sólsetri í Zurich, en það átti að vera einstakt í öskumynstrinu. „Það var sagt frá því í blaðinu að sólsetrið yrði stórfenglegt í öskumistrinu, dramatískir litir og draumur allra ljósmyndara. Ég vissi ekkert um þetta og ætlaði mér bara að taka myndir af sólsetrinu. Ég gekk upp þess hæð og þar var hópur fólks samankominn,“ segir Lynali sem vildi þá ólm fá mynd af sjónarspilinu. „Ég náði hins vegar ekki góðum myndum en Marcel var þá þegar þarna og hafði tekið myndir. Ég beið því aðeins þarna og hann fann mig og gaf sig á tal við mig,“ segir Lynali. „Hann spurði hvort ég hefði náð myndum af þessu og ég sagði „Nei, ég missti af því, ég hefði átt að mæta fyrr.““
Áhugaljósmyndararnir tveir hófu að spjalla saman og í kjölfarið fóru þau að vera reglulega í sambandi. Þau ræddu saman um ljósmyndun, fóru á stefnumót og enduðu sem kærustupar.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
