ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Bankar ofar borgurum og Alþingi ver ekki hagsmuni þeirra

Stjórnvöld rúin trausti samkvæmt nýrri könnun
15:49 › 17. ágúst 2011
Íslendingar virðast sannfærðir um að stjórnvöld beri hag bankanna fyrir brjósti ofar hag heimilanna og að Alþingi standi ekki vörð um hagsmuni almennings.

Íslendingar virðast sannfærðir um að stjórnvöld beri hag bankanna fyrir brjósti ofar hag heimilanna og að Alþingi standi ekki vörð um hagsmuni almennings.

Meirihluti svarenda í nýrri könnun MRR telur að ríkisstjórn Íslands leggi meiri áherslu á afkomu bankanna en heimilanna í landinu. Þá telja aðeins rétt um 12 prósent því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings. Þriðjungur telur að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J.

Í könnunnini kannaði MMR afstöðu landsmanna til nokkurra þátta sem varða ríkisstjórnina, stjórnarandstöðuna og Alþingi í heild. Könnunin var endurtekning könnunar MMR frá júlí í fyrra.

Í nýju könnuninni kom fram að 67,1 prósent þeirra sem afstöðu tóku sögðust frekar eða mjög sammála því að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en heimilanna í landinu. Þetta er lítil breyting frá því fyrir ári síðan þegar 70,8 prósent voru sömu skoðunar.

32,7 prósent þeirra sem tóku afstöðu töldu að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en núverandi ríkisstjórn. 42,4 prósent þeirra sem tóku afstöðu voru hins vegar ekki jafn sannfærðir um ágæti stjórnarandstöðunnar og töldu núverandi ríkisstjórn betur til verksins fallin.

Þetta er sömuleiðis lítil breyting frá júlí 2010 þegar 29,3 prósent töldu að landinu yrði betur stjórnað af stjórnarandstöðunni og 45,2 prósent sögðust ósammála því.

Þá kom fram í niðurstöðum könnunarinnar að einungis 12,4 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings á meðan 65,1 prósent kváðust því ósammála. Svipuð niðurstaða fékkst í fyrra þegar 15,8 prósent töldu Alþingi vinna fyrir hagsmuni borgaranna en 64,1 prósent töldu svo ekki vera.

Úrtak könnunarinnar voru einstaklingar á aldrinum 18-67 ára sem valdir voru handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Um netkönnun var að ræða og svöruðu 831 könnuninni sem framkvæmd var dagana 11.-14. júlí síðastliðinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?