„Hún gat ekki nærst lengur og drapst að lokum úr hor,“ segir Sigurbjörn Hjaltason, bóndi að Kiðafelli og fyrrverandi oddviti Kjósarhrepps. Hann tók eftir því síðasta vetur að óeðlilega mikið af kindum drógust upp og áttu erfitt með að nærast.
Við nánari skoðun kom í ljós að þær voru margar hverjar með mikil þykkildi og bólgur í kjálkabeinunum. Að lokum fór svo að ein þeirra drapst úr hungri en hann geymir hauskúpu hennar sem hann vonast til að fari í óháða rannsókn í haust.
Sigurbjörn telur líkur á því að flúor mengun frá álverinu á Grundartanga hafi valdið veikindum kindanna. Hann bendir meðal annars á að kindin sem drapst hafi verið fædd árið 2006, en sama ár varð mengunarslys í álverinu með þeim afleiðingum að mikið magn flúors slapp út í umhverfið. Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun tvöfaldaðist magn flúors í sauðfé og öðrum langlífum dýrum í kjölfar slyssins. Sigurbjörn býst allt eins við því að sömu örlög bíði fleiri kinda sem nú eru uppi á fjöllum.
Ærin grindhoruð
Þegar Sigurbirni varð ljóst að ekki væri allt með felldu hafði hann samband við Matvælastofnun sem sendi dýralækni á svæðið. Eftir nána skoðun komst dýralæknirinn að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að staðfesta að flúormengun hefði valdið dauða dýrsins þrátt fyrir að möguleiki væri á því. Til þess að skera úr um slíkt væri nauðsynlegt að senda bein og tennur í frekari rannsókn. Sigurbjörn vonast til þess að slíkt verði gert nú í haust.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
