ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Fyrsta manngerða líffærið grætt í nema við Háskóla Íslands

„Ég var hræddur, rosalega hræddur- snérist um að lifa eða deyja“
Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
22:40 › 7. júlí 2011
Stofnfrumur voru notaðar við gerð gervibarkans.

Stofnfrumur voru notaðar við gerð gervibarkans. BBC

Sænskir læknar græddu fyrir fjórum vikum nýjan barka í 36 ára gamlan krabbameinssjúkling, Andemariam Teklesenbet Beyene sem er í doktorsnámi í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem manngert líffæri er grætt í manneskju, en Beyene hefur þjáðst af krabbameini og átti erfitt með öndun. Æxli á stærð við golfkúlu hafði vaxið í öndunarvegi hans og þurftu læknar því að græða í hann nýjan barka.

Líffæragjafar voru óþarfir í tilfelli Beyene þar sem stofnfrumur sköpuðu nýjan barka eftir glereftirlíkingu af barka hans. Vísindamenn gerðu eftirlíkinguna af barka Beyene og lögðu í bleyti af stofnfrumum. Engar líkur eru á því að líkami hans muni hafna barkanum þar sem stofnfrumurnar koma allar úr hans eigin líkama.

Aðgerðin var framkvæmd fyrir mánuði síðan, en Beyene segist á vef BBC vera spenntur yfir því að komast aftur til Íslands og ljúka þar námi sínu svo hann geti snúið aftur til fjölskyldu sinnar í Eritreu í Afríku, þar sem þau bíða hans í ofvæni, þar á meðal þriggja mánaða gamall sonur hans. „Ég var hræddur- Rosalega hræddur en þetta snérist um að lifa eða deyja,“ segir hann við blaðamann BBC.

Vísindamenn telja aðgerðina mikla framför og segja að hún geti kollvarpað líffæragjöf. Macchiarini, sem stóð að baki gerð barkans í London, segir að þetta sýni að með stofnfrumum sé hægt að skapa önnur líffæri, ekki aðeins barka, á innan við viku.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?