ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Launahæsti prestur landsins

Hærri tekjur en biskup
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:25 › 26. júlí 2011
Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, kemur á hæla hæst launaðasta prests landsins með rúmlega 970 þúsund krónur á mánuði.

Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, kemur á hæla hæst launaðasta prests landsins með rúmlega 970 þúsund krónur á mánuði.

Séra Cecil Haraldsson, sóknarprestur á Seyðisfirði, er launahæstur presta landsins. Tekjur hans á síðasta ári námu rúmlega milljón krónum og 11 þúsundum króna á mánuði. Þess ber þó að geta að inn á milli þess að stunda prestsstörf situr Cecil í bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar fyrir Vinstri hreyfinguna grænt framboð. Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, kemur á hæla honum með rúmlega 970 þúsund krónur á mánuði. Séra Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur á Akureyri, er svo í þriðja sæti á lista klerkanna með rúmlega 920 þúsund krónur í mánaðarlaun. Séra Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur og fyrrverandi Alþingismaður er einnig í 900 þúsund króna klúbbnum með rúmlega 907 þúsund krónur á mánuði.

Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík, er eini presturinn sem greiddi auðlegðarskatt. Eignir hans nema tæplega 79 milljónum króna en samtals greiddi Hjörtur 56 þúsund krónur í slíkan skatt. Hann er með allra hæst launuðu prestum á landinu með tæplega 875 þúsund krónur í mánaðarlaun.

Prestar hafa flestir hverjir mánaðarlaun á bilinu 500 þúsund til 700 þúsund krónur. Forstöðumenn annarra kristinna safnaða virðast hins vegar þéna vel undir meðallaunum presta. Vörður Leví Traustason, forstöðumaður Fíladelfíu-safnaðarins, hefur minna en 400 þúsund krónur í mánaðarlaun og Gunnar í Krossinum hefur um 280 þúsund krónur í mánaðarlaun samkvæmt útreikningum á álagningarskrá. Þá hefur séra Pétur Þorsteinsson, prestur Óháða safnaðarins, um 350 þúsund krónur í mánaðarlaun.

Tekjur ríflega 2700 Íslendinga eru í DV í dag



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?