Algjör þögn um fjársektir

Heimildir DV herma að Þorsteini Erlingssyni verði gert að greiða yfir 200 milljónir

Heimildir DV herma að Þorsteini Erlingssyni, eiganda útgerðarfélagsins Saltvers í Reykjanesbæ, verði gert að greiða yfir 200 milljónir króna til Fiskistofu vegna meints löndunarsvindls. Þorsteinn, sem er fyrrverandi bæjarfulltrúi og stjórnarmaður í Sparisjóði Keflavíkur, tjáir sig ekki um málið í samtali við DV.

„Talaðu bara sjálfur við Fiskistofu og vertu blessaður,“ sagði Þorsteinn þegar hann var spurður hvort hann þyrfti að greiða fjársektir og hversu háar þær væru, í kjölfarið skellti hann á blaðamann. Heimildir DV herma að sektin sé tilkomin vegna ólöglegrar löndunar fyrirtækisins framhjá vigt, en málið hefur verið til rannsóknar hjá Fiskistofu undanfarna mánuði.

Hjá Fiskistofu fengust þær upplýsingar að málið væri í ferli og að það „færi sínar leiðir.“ Þorsteinn Hilmarsson, starfsmaður Fiskistofu, staðfesti hvorki né neitaði því að eiganda Saltvers hefði verið gert að greiða fjársektir til stofnunarinnar.

Fiskistofa hefur heimild samkvæmt lögum til að vinna rannsóknir sem snúa að því að bakreikna afurðir til afla. Heimildir DV herma að Þorsteini verði nú sendur reikningur í kjölfar slíks bakreiknings.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.