ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Anonymous-liðar handteknir

Teknir höndum vegna tölvuárásar á netþjóna Paypal
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
00:00 › 20. júlí 2011
Mynd sem að tengist efni fréttarinnar voðalega lítið

Mynd sem að tengist efni fréttarinnar voðalega lítið

Yfir 20 hafa verið handteknir í Evrópu og Ameríku vegna gruns um aðild að Anoynmous-hópnum, sem er hópur tölvuþrjóta. Fjórtán af þeim sem handteknir voru eru taldir hafa staðið að tölvuárás sem gerð var á vefsíðu Paypal í desember á síðasta ári.

Anonymous hópurinn hefur lýst sig ábyrgan fyrir árásinni, en einnig var ráðist á vefsíður Visa og Mastercard. Fyrirtækin þrjú höfðu lokað fyrir fjárframlög til Wikileaks-samtakanna.

Handtökurnar fóru fram víðsvegar um heiminn en flestir voru handteknir í Bandaríkjunum – alls 16 manns í mismunandi fylkjum landsins. Alríkislögregla Bandaríkjanna framkvæmdi þær handtökur. Einn var handtekinn í Lundúnum og nokkrir til viðbótar teknir höndum í Hollandi.

Hópurinn nýttist við svokallaðar „DDoS“-árásir en í þeim felst að senda netþjónum eða gagnaverum ógrynni upplýsinga, svo mikið að þeir ráði ekki við álagið og verði hér um bil óstarfhæfir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?