Fjórir af hverjum tíu ætla til útlanda í sumarfríinu. Ætla má að margir þeirra muni hafa það huggulegt á sólarströnd. Mynd Photos.com
38,4 prósent landsmanna ætla að fara til útlanda í sumarfríinu. Þetta er samkvæmt niðurstöðum könnunar MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu. Könnunin var framkvæmd dagana 9. til 15. maí og var heildarfjöldi svarenda 867 einstaklingar.
MMR kannaði hvort Íslendingar ætla að ferðast innanlands eða utan í sumarfríinu. Í tilkynningu sem MMR sendi frá sér kemur fram að um helmingur landsmanna ætli að ferðast innanlands í sumarfríinu.
Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar sögðust 51,9 prósent ætla eingöngu að ferðast innanlands, 28,5 prósent ætla að ferðast bæði innan- og utanlands í sumarfríinu, 9,9 prósent ætla eingöngu að ferðast utanlands og 9,7 prósent sögðust ekki ætla að ferðast í sumarfríinu.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
