Styrmir segist aldrei hafa skilið ákæruna gegn sér í Exeter-Holdings málinu. Hann sést hér í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Styrmir Bragason, einn þremenninganna sem var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í Exeter-málinu í dag, segir að niðurstaða dómsins hafi ekki komið honum á óvart. „Niðurstaða dómsins kemur mér ekki á óvart. Ég átti í raun aldrei von öðru en þessari niðurstöðu,“ segir Styrmir.
Styrmir, sem var ákærður fyrir umboðssvik og peningaþvætti, segir að hann hafi aldrei skilið ákæruna á hendur sér. „Ég hef í raun aldrei skilið ákæruna á hendur mér í þessu máli... Dómurinn er einróma í málinu hvað varðar sýknuna á hendur mér - það voru þrír dómarar í málinu.“
Aðspurður segist Styrmir ekki hafa velt fyrir því fyrir sér hvort hann ætli að leita réttar síns út af málaferlunum, fara í skaðabótamál eða eitthvað slíkt. „Nei, ég hef ekkert spáð í því.“
Ekki liggur fyrir hvort ákæruvaldið muni áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar Íslands.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
