ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Sérstakur saksóknari: „Þetta er bara niðurstaða í dómsmáli“

Ekki haft ráðrúm til að kynna sér niðurstöðuna
11:52 › 29. júní 2011
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segist ekki hafa haft ráðrúm til að kynna sér niðurstöðu dómsins í Exeter málinu.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segist ekki hafa haft ráðrúm til að kynna sér niðurstöðu dómsins í Exeter málinu.

„Þarna liggur bara niðurstaða dómsins fyrir. Enn sem komið er höfum við ekki haft ráðrúm til að kynna okkur niðurstöðuna og á hverju niðurstaðan er byggð,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari um sýknudóminn sem féll yfir þremenningunum í Exeter málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður í Byr, Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Byrs, og Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, voru allir sýknaðir en þeir voru ákærðir fyrir umboðssvik. Styrmi var einnig ákærður fyrir peningaþvætti en var einnig sýknaður af þeirri ákæru.

„Þetta er bara niðurstaða í dómsmáli. Við hefðum ekki ákært öðruvísi en við teldum sennilegt eða líklegt að við fengjum sakfellingu í þessu máli. Við getum svo sem ekki tengt miklar tilfinningar við það,“ segir Ólafur aðspurður um hvort niðurstaðan væri ekki ákveðið áfall fyrir embætti sérstaks saksóknara. Um var að ræða fyrsta málið frá sérstökum saksóknara sem fyrir dóm.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?