Ragnar Z. Guðjónsson játaði því að um væri að ræða jákvæða niðurstöðu fyrir sína hönd þegar hann var spurður út í niðurstöðu Héraðsdóms sem sýknaði hann af ákæru um umboðssvik.
„Ég hef ekki hugmynd um það,“ segir Ragnar Z. Guðjónsson aðspurður um hvort hann búist við því að þurfa að verjast málinu gegn sér fyrir Hæstarétti eftir að hann var sýknaður af kröfum ákæruvaldsins í Exeter málinu svokallaða í dag. Farið var fram á fimm ára fangelsi í málinu af hálfu ákæruvaldsins. Ragnar var ákærður fyrir umboðssvik ásamt þeim Styrmi Þór Bragasyni og Jóni Þorsteini Jónssyni. Þeir voru allir sýknaði í Héraðsdómi í dag.
Ragnar var ekki viðstaddur þegar dómurinn var kveðinn upp klukkan 11 í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. „Ég hef ekkert um málið að segja að svo stöddu,“ segir Ragnar aðspurður um hvað honum þætti um dóminn sem féll honum í hag og bætti því við að hann hefði ekki séð dóminn sjálfan. Hann játaði því samt sem áður að um væri að ræða jákvæða niðurstöðu fyrir sína hönd.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
