ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Exeter menn sýknaðir

Sýknaðir af ákæru um umboðssvik í Héraðsdómi
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:00 › 29. júní 2011
Styrmir Þór Bragason gengur út úr dómssal eftir að hann var sýknaður í 
Exeter málinu svokallaða.

Styrmir Þór Bragason gengur út úr dómssal eftir að hann var sýknaður í Exeter málinu svokallaða. Sigtryggur Ari

Þeir Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður í Byr, Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Byrs, og Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, voru í dag sýknaðir af ákæru um umboðssvik í Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómsuppsaga fór fram í málinu rétt í þessu.

Dómurinn snérist um það hvort umboðssvik hafi átt sér stað í málinu af hálfu þeirra þriggja. Styrmir var einnig ákærður fyrir peningaþvætti í málinu sem snýst um tvær lánveitingar upp á 1 milljarð króna sem stjórn Byrs samþykkti til eignarhaldsfélagsins Tæknisetur Arkea/Exeter Holding í október og desember 2008. Lánið til Arkea var notað til að kaupa stofnfjárbréf stjórnarmanna Byrs í sparisjóðnum, meðal annars bréf stjórnarformannsins Jóns Þorsteins og Birgis Ómars Haraldssonar, á yfirverði sem og bréf sem MP Banki hafði leyst til sín með veðköllum frá starfsmönnum Byrs. Veðið fyrir láni Exeter var að öllu leyti í stofnfjárbréfunum sem keypt voru.

Um var að ræða fyrstu ákærunar eftir rannsókn sérstaks saksóknara eftir hrunið. Sakborningarnir þrír, Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður í Byr, Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Byrs, og Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, neituðu allir sök fyrir dómi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?