Grein í framvindu. Síðast uppfært kl. 10:38.
Alls þrettán rúður voru brotnar í biskupsbústaðnum við Landakot í nótt. Heimildir DV herma að maður hafi verið handtekinn í tengslum við málið í nótt.
Að sögn prests sem varð vitni að atvikinu virtist maðurinn vera í eðlilegu ásigkomulagi. Hann var ekki ölvaður og virtist ekki heldur vera undir áhrifum eiturlyfja. Presturinn vissi ekki hvað manninum gekk til né hvort hann væri fyrrum nemandi við Landakotsskóla. Hann yppti öxlum yfir atvikinu. „Við virðumst bara vera orðnir réttdræpir.“
Lögreglan kom á staðinn í nótt þar sem maðurinn var í óða önn að brjóta rúðurnar í biskupsbústaðnum. Klukkan korter yfir tvö í nótt var lögreglu tilkynnt um að maður væri að brjóta rúður í biskups og prestsbústaði kaþólsku kirkjunnar við Hávallargötu 12. Þegar lögregla kemur á staðinn kom í ljós að þar var einn maður á ferðinni og hann hafði brotið alls þrettán rúður í húsinu, að því er fram kemur í skýrslu lögreglunnar.
Hann var handsamaður og færður í fangageymslur lögreglunnar. Maðurinn, sem er tvítugur, sagðist hafa brotið rúðurnar í reiðiskasti og hafði að sögn lögreglu ekki nánari skýringar á athæfi sínu. Honum var sleppt undir morgun.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 








Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
