Könnun á vegum MMR sýnir að 65,7% aðspurðra eru á móti landsdómsmálinu gegn Geir H. Haarde fyrrum forsætisráðherra. Könnunin var framkvæmd dagana 9.-15. júní 2011 og var heildarfjöldi svarenda 867 einstaklingar.
Í tilkynningu frá MMR kemur fram að mikill munur hafi verið á afstöðu fólks eftir stjórnmálaskoðun og að mikil breyting hafi orðið á afstöðu fólks frá fyrri könnun fyrirtækisins sem gerð var í september árið 2010.
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 48,3% vera mjög andvígir, 17,3% frekar andvígir, 14,6% frekar fylgjandi og 19,7% sögðust mjög fylgjandi að höfðað hafi verið sakamál gegn Geir H. Haarde
Mikill munur reyndist á afstöðu fólks eftir því hvar það stendur í stjórnmálum. Andstaðan reyndist mest á meðal Sjálfstæðismanna, en 91,7% þeirra sem tóku afstöðu og myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ef kosið yrði í dag, sögðust frekar eða mjög andvígir því að höfðað hefði verið sakamál fyrir landsdómi gegn fyrrverandi oddvita Sjálfstæðisflokksins. Aftur á móti voru 73,4% þeirra sem tóku afstöðu og myndu kjósa Vinstri-græna, ef gengið væri til kosninga í dag, fylgjandi ákærunni.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
