Fjórðungur landsmanna ber lítið traust til Landlæknisembættisins, samkvæmt könnun MMR. Geir Gunnlaugsson er landlæknir. Mynd DV
26,7 prósent landsmanna segjast bera lítið traust til Landlæknisembættisins, samkvæmt nýrri könnun MMR. Könnunin var framkvæmd dagana 9. til 15. júní og var heildarfjöldi svarenda 867 einstaklingar.
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 32,3 prósent bera mikið traust til embættisins, 25 prósent sögðust bera frekar mikið traust og 7,3 prósent sögðust bera mjög mikið traust til til embættisins. Þá sögðust 41,1 prósent af þeim sem tóku afstöðu hvorki bera mikið né lítið traust til embættisins, 17,2 prósent sögðust bera frekar lítið traust og 9,5 prósent sögðust bera mjög lítið traust til Landlæknisembættisins.
Í tilkynningu frá MMR kemur fram að nokkur munur hafi verið á afstöðu eftir aldri, menntun, starfstétt og tekjum. Af þeim sem tóku afstöðu voru 30,5 prósent þeirra sem voru í aldurshópnum 50 til 67 ára sem sögðust bera lítið traust til
embættisins borið saman við 21,2 prósent þeirra sem voru í aldurshópnum 18 til 29 ára.
Þá voru 18,7 prósent sérfræðinga sem tóku afstöðu sem sögðust bera lítið traust til Landlæknisembættisins borið saman við 38 prósent iðnarmanna. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 21,1 prósent sem hafa hæstu tekjurnar (800 þúsund eða hærra) bera lítið traust til embættisins borið saman við 32 prósent þeirra sem eru með 250 til 399 þúsund í heimilistekjur á mánuði.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 



Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
