Níu þingmenn, með Framsóknarkonuna Siv Friðleifsdóttur í fararbroddi, hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem almenn sala á tóbaki er bönnuð. Um er að ræða 10 ára rammaáætlun sem þingmennirnir vilja að velferðarráðherra vinni sem miði að því að takmarka sölu tóbaks við apótek.
Einnig er talað um forvarnir og takmörkun á sýnileika tóbaks á Íslandi í tillögunni. Segir meðal annars að óeðlilegt sé að „leikarar reyki í íslenskum bíómyndum og á leiksviðum og ætti að setja tilmæli um að draga úr því í lög eða reglugerð“ í tillögunni. „Leikrit og kvikmyndir sem reykt er í ættu ekki að fá opinbera styrki eða annan stuðning af skattfé.“ Sérstaklega er tekið fram að ekki er þetta gert til að takmarka listrænt frelsi.
Í tillögunni er þá gert ráð fyrir að takmarkanir verða settar á neyslu tóbaks á ýmsum stöðum. Meðal takmarkana sem nefndar eru í frumvarpinu eru bann við reykingum á lóðum opinberra bygginga, á gangstéttum, í almenningsgörðum, á baðströndum, á svölum fjölbýlishúsa og opinberra bygginga.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
