Barnið var með í bílnum

Maðurinn sem úrskurðaður hefur verið í gæsluvarðhald eftir að hafa ráðið barnsmóður sinni bana í gær ók barni sínu til foreldra sinna áður en hann fór á Landspítalann í Fossvogi með lík stúlkunnar. Þetta kemur fram á fréttavefnum Vísi. Þegar DV bar málið undir lögregluna vildi hún ekki staðfesta að svo hefði verið og gaf ekkert uppi um hvar barnið væri niðurkomið.

Samkvæmt heimildum DV ók maðurinn ásamt hinni látnu um Heiðmörk þegar þeim hafi lenti saman. Deilan hafi leitt til þess að bæði fóru út úr bílnum þar sem hinn hræðilegi atburður átti sér stað. Þetta hefur ekki heldur fengist staðfest hjá yfirvöldum, sem vilja ekki gefa frekari upplýsingar um málið en hefur komið fram í tilkynningum lögreglunnar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.