ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Hinir útvöldu: Þessum er boðið í Hörpuna

17:45 › 12. maí 2011
Þeim sem fá boðsmiða á opnunarhátíð Hörpunnar er skipt í 33 flokka. Fjöldi boðsmiða skiptir því að líkindum hundruðum.

Þeim sem fá boðsmiða á opnunarhátíð Hörpunnar er skipt í 33 flokka. Fjöldi boðsmiða skiptir því að líkindum hundruðum. Mynd: DV

Forseti Íslands, fyrrverandi og núverandi ráðherrar, þingmenn, fyrirtæki, borgarstarfsmenn og skrifstofustjórar eru meðal þeirra hópa sem boðið er á opnunarhátíð tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu sem fram fer annað kvöld.

DV hefur fengið listann yfir þá hópa sem boðið er, leynd hvílir hins vegar yfir gestalistanum sjálfum og þeim fjölda miða sem hver hópur á listanum hér að neðan fær úthlutað.

Sérstök nefnd var sett á laggirnar til að setja sama gestalista hinna útvöldu. Greint var frá því fyrr í dag að Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi auðmaður, sem upphaflega ætlaði að gefa Íslendingum tónlistarhúsið væri meðal boðsgesta ásamt eiginkonu sinni. Af listanum að dæma gæti hann fallið undir flokkinn „Verktakar og fjölmargir af þeim aðilum sem komið hafa að verkinu“

Alls er um 33 flokka að ræða en fjöldi boðsmiða fyrir hvern flokk getur verið umtalsverður eins og sjá má.

Þessum er boðið:

Forseti Íslands
Fyrrverandi forseti Íslands
Fyrrverandi menntamálaráðherrar
Menningamálaráðherrar norðurlandanna
Ráðherrar
Þingmenn
Sendiherrar
Ráðuneytisstjórar
Skrifstofustjórar ráðuneyta
Forstöðumenn

Menningarráð - fulltrúar fjórðunga
Formenn tónlistarfagfélaga
Bæjarstjórar á höfuðborgarsvæðinu og höfuðstaðs hvers fjórðungs
Borgarstjórn
Ráðhúsið
Fyrrverandi borgarstjórar
Menningar- og ferðamálaráð
Sviðstjórar Reykjavíkurborgar
Forstöðumenn menningarstofnanna
Borgarlistamenn - tónlistartengt

Ferðaþjónustan
Íslenska óperan
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Tónlistarhátíðir
Tónlistarútgáfur
Heiðursverðlaunahafar
Ýmis fyrirtæki

Listamenn kvöldsins
Forsvarsmenn erlendra tónlistarhúsa
Verktakar og fjölmargir af þeim aðilum sem komið hafa að verkinu
Starfsmenn, stjórnir og fyrrverandi stjórnir
Innlendir fjölmiðlar
Erlendir fjölmiðlar



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?