ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Hert á áfengislögum: Bannað að auglýsa léttöl

Drykkir með minna en 2,25% vínanda mun ekki mega auglýsa séu þeir í nauðlíkum umbúðum og áfengir drykkir.
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:10 › 3. apríl 2011

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að áfengislöggjöf verði hert. Þá mun vera bannað að auglýsa óáfenga drykki sem seldir eru í nauðlíkum umbúðum og áfengir drykkir.

Þá mun verða ólöglegt að auglýsa drykki sem innihalda minna en 2,25% af vínanda, séu þeir í umbúðum sem svipar mjög til umbúða áfengra drykkja. Þá verður samkvæmt frumvarpinu bannað að sýna áfengisdrykkju í auglýsingum og sama mun eiga við hvers kyns meðferð áfengis.

Tilgangur frumvarpsins er að koma í veg fyrir að áfengi sé auglýst með óbeinum hætti og að sama skapi á að gera löggjöfina skýrari.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?