Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ætlar að láta kanna möguleika á því að menning og listir fái að einhverju leyti að njóta tekna sem Íslensk getspá hefur af lottóinu í landinu. Þetta kom fram í máli hans við afhendingu Menningarverðlauna DV síðastliðinn miðvikudag.
Kvaðst Ögmundur ætla að skipa starfshóp til þess að fara yfir skiptingu lottóteknanna með mögulega endurskoðun í huga. Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna, færði hugmyndina í tal þegar hún kynnti tilnefningar og verðlaun DV á sviði kvikmyndagerðar.
Viðbrögð Ögmundar féllu í góðan jarðveg hjá viðstöddum. Eins og nú háttar til fá Íþróttasamband Íslands og UMFÍ 60 prósent lottóteknanna í sinn hlut en Öryrkjabandalag Íslands 40 prósent. Ágúst Guðmundsson leikstjóri kynnti hugmyndina í Morgunblaðsgrein í september 2009.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
