Konan var hvött til að kæra atvikið eftir að málið spurðist út hjá samtökunum. (Myndin tengist fréttinni ekki beint.)
Forstöðumaður Ekron, sem er sértæk einstkalingsmiðið atvinnutengd starfsþjálfun og endurhæfing fyrir einstaklinga með skerta vinnufærni, sökum afleiðinga áfengis- og vímuefnasýki, hefur verið kærður til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir kynferðisbrot. Fréttablaðið greinir frá þessu.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins var það kona sem var skjólstæðingur samtakanna sem kærði forstöðumanninn fyrir að hafa við sig samfarir. Konan var hvött til að kæra atvikið eftir málið spurðist út meðal fólks hjá Ekron. Kæran mun hafa borist lögreglu í þessum mánuði.
Samkvæmt heimasíðu samtakanna er markmið Ekron að aðstoða óvirka alkóhólista og fíkniefnaneytendur, öryrkja og alla þá sem ekki eru á vinnumarkaði. „EKRON er fyrir einstaklinga sem hafa ekki haft gott aðgengi að atvinnu. Við viljum hjálpa fólki að byggja sig upp fyrir framtíðina, að hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft svo það geti tekið virkan þátt í þjóðfélaginu á ný. Reynslan sýnir að fólk sem hefur verið lengi frá atvinnu hefur takmarkað starfsþrek og skerta getu til að fara aftur til starfa,“ segir á heimasíðunni.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
