„Síðustu þrjátíu kílómetrana var ég orðinn svo þreyttur að ég fann ekki fyrir fótleggjunum,“ segir franski jaðaríþróttamaðurinn Jerome Josserand. Á föstudag varð hann sá fyrsti til að ferðast þvert yfir Ísland á svokölluðum snjódreka. Með snjódreka láta menn vindinn draga sig áfram á skíðum eða snjóbretti, og geta þannig náð verulegum hraða, en á tímabili náði Jerome sextíu kílómetra hraða á skíðunum. Hann kláraði ferðina á átta og hálfum tíma.
„Þetta er rosalegt afrek hjá honum og maður trúir því varla að hann sé búinn að þessu. Vindurinn fór upp í tuttugu metra á sekúndu á tímabili, en til samanburðar má nefna að ég pakka saman ef hann fer í tíu metra á sekúndu,“ segir Gísli Steinar Jóhannesson hjá Paragliding sem aðstoðaði Jerome. „Fyrstu fimmtíu kílómetrarnir voru mjög fínir, veðrið var gott og vindurinn lítill. En eftir það fór vindurinn að blása þannig að ég sá ekki mikið,“ segir Jerome sem undirbýr nú stofnun snjódrekaskóla sem til stendur að opna hér á landi næsta vetur.
Jerome naut fylgdar tökumanna sem fylgdust með ferðalagi hans frá Mýrdalsjökli í suðri og yfir í Bárðardal í norðri. Leikstjórinn, Jure Breceljnik, segist vanalega elta Jerome á snjódreka en það hafi einfaldlega verið of hættulegt í þetta skiptið. „En við eltum hann alla leiðina á snjóbílnum, frá upphafi til enda,“ ítrekar hann. Hann býst við því að frumsýna myndina hér á landi í kringum áramótin næstu. Jerome er heimsfrægur í þessari jaðaríþrótt en hann á heimsmetið í stökki á snjódreka, upp á heila 455 metra. Áhugasamir geta nálgast frekari upplýsingar um uppátæki Jerome á heimasíðunni jerome-josserand.com.
Í heimildarmyndinni Black and white heaven, sem leikstýrt var af Jure Breceljnik, og kemur út í fullri lengd í næsta mánuði, má meðal annars sjá Jerome renna sér með hjálp snjódreka á ösku Eyjafjallajökuls og á vatni Jökulsárlóns. Brot úr myndinni má sjá hér að neðan.
Black and White Heaven (GG on Iceland) - Teaser from Film IT on Vimeo.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 






Skátar hefja nýja skátaöld
Strauss- Kahn laus úr haldi
Ísland greiðir 1400 milljónir í þróunarsamvinnu
„Ég greiddi hátt í 600,000 krónur í skatt í síðasta mánuði“
Segir auglýst eftir kvörtunum vegna Dróma