Ný könnum MMR sýnir að traust til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, hefur aukist verulega frá því síðasta könnun gerð í maí árið 2010. Í könnuninni sögðust 41,7 prósent þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til forsetans, en í maí 2010 sögðust 26,7 prósent bera mikið traust til hans.
Þá vekur athygli að 41,7 prósent sjálfstæðismanna segjast bera mikið traust til forsetans og hefur það aukist verulega frá síðustu könnun þegar 22,3 prósent sögðust treysta honum. Traust framsóknarmanna til forsetans er álíka mikið og til formanns flokksins. 67,7 prósent framsóknarmanna sögðust bera mikið traust til forsetans, en 68,4 prósent sögðust treysta formanni flokksins. Forsetinn nýtur töluvert minna trausts hjá stuðningsmönnum ríkissjórnarflokkanna, en 26 prósent samfylkingarmanna sögðust bera mikið traust til forsetans og 29,8 prósent Vinstri grænna treysta honum.
Samkvæmt könnuninni hefur traust almennings til forystumanna stórnarflokkana minnkað verulega. 22,3 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til Steingríms J. Sigfússonar, borið saman við 37,6 prósent í síðustu könnun. Þá sögðust 16,9 prósent þeirra tóku afstöðu bera mikið traust til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, borið saman við 23,9 prósent í maí árið 2010.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
