Margrét Steinarsdóttir lögfræðingur er framkvæmdastjóri Mannréttindastofu Íslands og ráðgjafi innflytjenda hjá Reykjavíkurborg. Hún er ein þeirra sem lét vinna fræðslubækling til erlendra kvenna um rétt þeirra og ofbeldi í nánum samböndum.
Margrét segir bæklinginn nýtast íslenskum konum líka enda sé heimilisofbeldi algengt hér á landi. Erlendar konur séu hins vegað einangraðri og með minni reynslu af íslensku jafnréttissamfélagi en íslenskar og því takist ofbeldismönnum frekar að kúga þær og halda markvisst að þeim ranghugmyndum um rétt þeirra og stöðu.
Íslenskur siður að sofa hjá vinum eiginmannsins
„Í bæklingnum er að finna upplýsingar og úrræði um ofbeldi í nánum samböndum, skilnað og réttindi,“ segir Margrét. „En við fundum líka að það var nauðsynlegt að svara spurningum sem við fáum ítrekað og svarað þeim skýrt svo enginn vafi leikur á. Ég get nefnt sem dæmi að konur hafa sagt okkur frá því að þeim hafi verið talin trú um að íslenskar konur gangi um naktar innanhúss og aðrar sem lýsa því að þeim sé svo illa við þann íslenska sið að íslenskar konur þurfi að sofa hjá vinum eiginmanna sinna. Svör við spurningum af þessu tagi eru í bæklingnum af því að við töldum ríka þörf á því.
Hér á eftir er samansafn algengra spurninga kvenna í ofbeldissambandi og rétt svör við þeim.
Algengar spurningar kvenna í ofbeldissambandi
Ofbeldismenn halda margvíslegum ranghugmyndum að eiginkonum sínum til að hafa yfir þeim stjórn og kúga þær. Hér er listi af algengum spurningum sem konur í ofbeldissamböndum spyrja að í viðtölum við ráðgjafa og svör við þeim.
• Eiga konur á Íslandi að hlýða eiginmönnum sínum skilyrðislaust?
Nei, það er ekki rétt. Konur og karlmenn eru jafningjar.
•Eiga eiginkonur að afhenda eiginmönnum laun sín?
Nei, það er ekki rétt. Þú átt launin en eflaust ættir þú að nota hluta þeirra til reksturs heimilisins og eiginmaður þinn líka. Það fer eftir því hversu mikilla launa þið aflið hversu mikið þið leggið til.
• Er það rétt að við skilnað fái faðirinn forræði yfir börnunum?
Nei, það er ekki rétt. Almenna reglan er sú að við skilnað fái foreldrar sameiginlegt forræði en ef það eru deilur um slíkt þá úrskurðar dómari um forræði. Niðurstaðan fer eftir aðstæðum og málsatvikum.
• Er það venjan á Íslandi að konur gangi um naktar eða á undirfötunum heima við? Líka þegar vinir eiginmanns míns eru í heimsókn?
Nei, það er ekki rétt. Konur ganga í þeim klæðnaði sem þær kjósa sjálfar, hvort sem þær eru heima eða ekki.
• Er það siður á Íslandi að kona verður að hafa kynmök við vini eiginmanns síns?
Nei, það er ekki rétt. Þú ræður sjálf yfir þínum líkama.
• Á eiginmaður minn rétt á kynlífi hvar og hvenær sem er?
Nei hann hefur ekki þann rétt nema þú viljir það sjálf.
• Eiginmaður minn hefur neytt mig í vændi; verð ég fangelsuð eða send úr landi?
Nei, vændi er ekki glæpur en það er glæpur að kaupa vændi og að miðla vændi. Þér verður ekki refsað en eiginmanni þínum og þeim sem kaupa vændi verður refsað. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að verða send úr landi vegna þessa.
Hér er má lesa bæklinginn á öðrum tungumálum:

Hemmi Gunn fallinn frá