ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE

Sameining leikskóla byggð á ritgerð verkefnastjóra starfshópsins

22:14 › 8. febrúar 2011
Mikil óvissa ríkir á meðal leikskólastarfsmanna vegna fyrirhugaðrar sameiningar leikskóla. (Myndin tengist fréttinni ekki beint)

Mikil óvissa ríkir á meðal leikskólastarfsmanna vegna fyrirhugaðrar sameiningar leikskóla. (Myndin tengist fréttinni ekki beint)

Marta Dögg Sigurðardóttir formaður Félags leikskólakennara gerði nokkrar alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaðar tillögur um samrekstur og sameingu leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila í Reykjavík, á samráðs- og kynningarfundi sem haldinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur síðastliðinn mánudag. Tillögurnar koma frá starfshópi sem farið hefur yfir málefni bæði leik- og grunnskóla í borginni.

Marta gerði einnig athugasemdir við þær rannsóknir sem Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, hefur vísað til í málflutningi sínum um hagræðingu í leik- og grunnskólamálum. Eftir að Jóna Rósa Stefánsdóttir, varaformaður Félags leikskólakennara, sem einnig sat fundinn, fór þess á leit við Oddnýju að hún vísaði á þessar rannsóknir þá kom í ljós að um er að ræða könnun vegna mastersritgerðar Óskars Sandholt, verkefnastjóra starfshópsins, á áhrifum sameiningar nokkurra fámennra grunnskóla á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í frétt á vef Félags leikskólakennara.

„Könnunin tekur eingöngu til sameiningar grunnskóla, en hvergi er minnst á samrekstur ólíkra skólastiga eða sameiningu tveggja leikskóla. Þar utan er úrtakið sem könnunin tekur til svo lítið að hæpið er að byggja jafn víðtækar og afdrifaríkar breytingar og um ræðir á niðurstöðum könnunarinnar,“ segir í fréttinni.

Mikillar óánægju gætir á meðal leikskólastarfsmanna vegna fyrirhugaðrar sameiningar og fólk innan stéttarinnar hefur sagt að allt logi af ónægju. Þá hefur verið bent á að enginn ávinningur sé af því að missa fagfólk úr stéttinni vegna hagræðingar, en það muni óhjákvæmilega gerast.

Það mun koma í ljós í lok febrúar hvaða leikskólar verða sameinaðir og hvort grunnskólar og frístundaheimili sameinist einnig. Þangað til upplifa tugir leikskólastarfsmanna mikla óvissu um framtíð sína og starfsöryggi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.