Menningarverðlaun DV. Sigurvegarnir frá því í fyrra sem hlutu verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2009.
Menningarverðlaun DV fyrir árið 2010 verða afhent miðvikudaginn 2.mars í Gyllta salnum á Hótel Borg klukkan 17.00. Í ár eru verðlaun veitt í níu flokkum og eru tilnefningar 45 talsins. Auk þess eru veitt verðlaunin Val lesenda þar sem lesendum DV.is gefst tækifæri til þess að kjósa þá tilnefningu sem þeim lýst best á.
Hér að neðan má sjá allar tilnefningarnar 45, skipan dómnefnda í hverjum flokki og rökstuðning þeirra.
Val lesenda er lokið. Kosningunni lauk á miðnætti þriðjudaginn 1.mars.
BÓKMENNTIR
Gleðileikurinn guðdómlegi eftir Dante Alighieri
– í þýðingu Erlings E. Halldórssonar
Mikill fengur er að þessu stórvirki vestrænnar menningar í heild á íslensku í þetta sinn. Prósaþýðing Erlings kórónar að vissu leyti mörg afrek hans frá fyrri árum og með þýðingu sinni fá Íslendingar nú aðgengi að þessu lykilverki í vandaðri þýðingu og fallegri bók með myndskreytingum eftir Gustave Doré. Prósaþýðingin viðheldur blæ af ljóðrænu frumtextans með snjöllum hætti og er oft unun að lesa. Verk sem verður að vera til á hverju menningarheimili.
Ljósa
– eftir Kristínu Steinsdóttur
Kristín Steinsdóttir færir lesendur bókstaflega inn í hugarheim konu frá síðari hluta nítjándu aldar með sérlega glæsilegum hætti. Þessi hugarheimur er langt frá því að vera einfaldur og endurspeglar hversu flókið það gat verið að lifa við þau bönd sem harður heimur fyrri tíða lagði á konur. Draumar Ljósu og ástir, vannýttir hæfileikar og tengsl við fjölskyldu eru ofin hér saman með stílfærni sem kveður lesandann inn í textann og þá fagurlega erfiðu ævi sem þar lifir. Eins og ævinlega er fegurðin bæði einföld og ögrandi.
Síðdegi
– eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur
Síðdegi er nýjasta ljóðabók Vilborgar Dagbjartsdóttur, eitt merkasta ljóðskáld okkar. Viðfangsefnin eru margbreytileg og fengin víða að, en þó má merkja þar ákveðið stef í myndmálinu eins og titillinn ber með sér; elli, kvöldrökkur, haust. Það er engu að síður birta yfir ljóðunum, mjúk og glaðleg. Ljóð um konur eru áberandi eins og í fyrri verkum Vilborgar, brugðið er upp áhrifamiklum myndum af konum í nútíð og fjarlægri fortíð. Bókin sýnir einstakt lag skáldsins á fjölbreyttum ljóðformum, hér eru þróttmiklir ljóðabálkar jafnt sem haganlega ortar hækur um árstíðirnar.
Sýrópsmáninn
– eftir Eirík Guðmundsson
Hugleiðingar um ástarsambönd, ferðalög, sköpunarþörf og sjálfsleit sameinast hér í metnaðarfullum, tilraunakenndum texta sem iðar á milli húmors, ljóðrænu, sorgar og eins konar dulmáls. Söguhetjan ráfar um Reykjavík sem er við það að hverfa í þoku, kirkjugarð í París og dimman ítalskan skóg og tengir saman minningar sínar úr barnæsku, nýliðna atburði og bókmenntatexta sem sækja á hann úr ýmsum áttum, ekki endilega til að fá skýra mynd af fortíð, heldur af því hann virðist vart hafa neitt val: „Ég rifja þetta upp. Hvað ætti ég svo sem annað að gera?“ Hér er skapað andrúmsloft sem tælir lesandann, hryggir og gleður á víxl.
Brúður
– eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur
Léttleikandi og um leið alvörugefin ljóð Sigurbjargar eru hressandi lesning. Tekist er á við klisjurnar á ferskan og hugmyndaríkan hátt þannig að lesandinn nær jafnvægi milli væntinga sinna og óvæntra vendinga textans. Þessi jafnvægislist er studd af skemmtilegum myndskreytingum Bjargeyjar Ólafsdóttur og það er virkilega ánægjulegt að renna oftar en einu sinni í gegnum ljóð sem opnast alltaf á nýjan hátt við hvern lestur.
Dómnefnd:
Gauti Kristmannsson, formaður
dósent
Auður Aðalsteinsdóttir
bókmenntafræðingur
Gunnþórunn Guðmundsdóttir
dósent
BYGGINGARLIST
Sundlaugin á Hofsósi
Staðsetning: Hofsós
Verkkaupi: Sveitarfélagið Skagafjörður
Arkitektar: Basalt / VA arkitektar: Jóhann Harðarson, Marcos Zotes Lopes, Rósa Dögg Þorsteinsdóttir, Stefanía Sigfúsdóttir, Sigríður Sigþórsdóttir
Ráðgjafar: Verkís, Guðjón L. Sigurðsson
Stærð: 400 m2
Bygging við sundlaug hýsir búnings- og baðaðstöðu fyrir útilaug og potta. Staðsetning sundlaugarinnar er valin til að ná tengslunum við hafið, laugarkerið stefnir á Drangey. Kantur þess hluta kersins er lægri þannig að vatnið fellur fram af honum og sjónrænt rennur sundlaugarvatnið og sjórinn saman í eitt. Sundlaugin á Hofsósi er gjöf Lilju Pálmadóttur og Steinunnar Jónsdóttur til sveitarfélagsins.
Lögð er áhersla á mikilvægi náttúrulegrar dagsbirtu í byggingunni. Aðdragandi og ferðalag um húsið er skýrt, frá götu um innri rými sem leiðir til hámörkunar upplifunar í sundlauginni sjálfri með útsýni yfir hafflöt og Drangey. Auðmýkt gagnvart umhverfinu og landslagi fjarðar, fjalla og Drangeyjar einkenna verkið. Landslag og þak hússins skapar skemmtilegt útisvæði í bænum. Öll staðarmyndun er til fyrirmyndar og upphefur fallegt útsýni. Verkið er gott fordæmi fyrir íslenska baðmenningu.
Háskólinn á Akureyri
Staðsetning: Akureyri
Verkkaupi: Háskólinn á Akureyri
Arkitektar: Gláma Kím Arkitektar: Sigurður Halldórsson, Árni Kjartansson, Jóhannes Þórðarson, Sigbjörn Kjartansson, Ólafur Tr. Mathiesen, Blanka Pöschlová, Carolyn Fretwurst, Richard Blurton
Ráðgjafar: Almenna verkfræðistofan, Raftákn, Helgi Eiríksson, Landslag
Stærð: 7.500 m2
Háskólinn á Akureyri er byggður við og utan um eldri byggingar að Sólborg. Eldri byggingar og staðhættir að Sólborg gefa tóninn fyrir varfærnislega nálgun. Með nýbyggingunum er byggingareiningum raðað saman og þær tengdar í eina heild með glerjuðum tengigangi. Byggingar háskólans eru afrakstur opinnar arkitektasamkeppni sem haldin var 1995. Háskólinn hefur verið byggður í áföngum frá 1996. Nýjasti áfangi skólans, aðalinngangur og forsalur auk hátíðar- og fyrirlestrasala, var tekinn í notkun síðsumars 2010.
Hér er gott dæmi um verk þar sem breyta þarf notkun eldri bygginga og tvinna við nýja starfsemi. Einstaklega vel hefur tekist til við flæði milli eldri og nýrri byggingahluta og að skapa heildrænt yfirbragð með vandaða útfærslu á rýmum og efnisvali. Sérstaða verksins er hversu vel samþætt og útfært það er og það hvernig vönduðum vinnubrögðum er viðhaldið á löngum framkvæmdartíma.
Ásgarður fimleikahús
Staðsetning: Garðabær
Verkkaupi: Bæjarsjóður Garðabæjar
Arkitektar: Arkitektur.is
Ráðgjafar: VSB Verkfræðistofa, Efla, Landslag, Strendingur
Stærð: 3.440 m2
Í Ásgarði er fjölbreytt aðstaða til íþróttaiðkana. Nýbygging samanstendur annars vegar af fimleikahúsi og hins vegar af inngangi sem tengir saman alla starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar, svo sem sundlaug, handboltasal, þreksal o.fl. Húsið nýtist til fjölbreytts íþróttastarfs með aðgengi fyrir nemendur grunnskóla, leikskóla og eldri bæjarbúa.
Hér er vel leyst að tengja saman mismunandi stærðir eldri og nýrri byggingahluta. Vandmeðfarið er að laga íþróttamannvirki vel að umhverfinu vegna stærðar. Þessu er náð með því að grafa fimleikasal niður og liggur hann því lágreistur í umhverfinu. Minni aðkomubygging tekur á móti gestum og tengir saman fjölþætta starfsemi íþróttamiðstöðvar. Frá aðkomurými er góð yfirsýn yfir fimleikasal og hæðarmunur er nýttur fyrir áhorfendapalla.
Sumarhús í Borgarfirði
Staðsetning: Borgarfjörður
Verkkaupi: Einkaaðili
Arkitektar: Gláma Kím Arkitektar: Sigurður Halldórsson
Ráðgjafar: VIK verkfræðistofa, Helgi Eiríksson
Stærð: 105 m2
Sumarhúsið er staðsett á kjarri vöxnum útsýnisstað í Borgarfirði. Til austurs eru Eiríkisjökull og Strútur, og til suðurs Ok. Byggingar fanga útsýni og skapa skjólgóð útirými. Áhersla er lögð á tengsl við nánasta umhverfi með stórum gluggum og gegnsæi. Sumarhúsið er tvær byggingar sem tengdar eru saman með yfirbyggðri verönd.
Mótun útisvæða og tenging við umhverfi er forsenda fyrir vel heppnuðu sumarhúsi. Hér er það gert með þremur húshlutum sem skilgreina og aðgreina skýr útisvæði sem svara vel sólargangi og veita mismunandi skjól fyrir veðri og vindum. Áferð og efniskennd húsa er einföld og hæglát sem fer vel í nærliggjandi birkivöxnu landslagi. Hús liggja vel í landi og skapa skemmtilegt samspil við landslag nær og fjær.
Hjúkrunarheimili Suðurlandsbraut
Staðsetning: Reykjavík
Verkkaupi: Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og Framkvæmdasvið
Reykjavíkurborgar
Arkitektar: Yrki Arkitektar: Sólveig Berg, Ásdís H. Ágústsdóttir, Sigurður Kolbeinsson, Kathleen Cheong, Ragnhildur Kristjánsdóttir, Hrólfur Cela, Agatha Bienkowska, Liv Seljevoll
Ráðgjafar: Mannvit, Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar, Landslag
Stærð: 7.700 m2
Hjúkrunarheimilið í Mörkinni er afrakstur boðskeppni fyrir arkitekta um byggingu þjónustuíbúða og þjónustumiðstöðvar aldraðra og hjúkrunarheimilis. Hjúkrunarheimilið er á fjórum hæðum auk jarðhæðar sem er að hluta til niðurgrafin. Á efri hæðunum eru íbúðir, setustofur og fylgirými. Á neðstu hæðinni er aðalinngangurinn með móttöku, samkomusalur og salir og stofur undir kapellu, ásamt þjónusturými og skrifstofum.
Hjúkrunarheimilið er vandað og metnaðarfullt verkefni. Byggingin er staðsett innan stærra þjónustusvæðis sem, þegar lokið er, mun skapa samhangandi heild í umhverfinu. Mýkt í formi jarðhæðar tengist vel umhverfinu. Innanhúss er bjart og rúmgott og allur frágangur er til fyrirmyndar.
Dómnefnd:
Sigrún Birgisdóttir, formaður
lektor og fagstjóri í arkitektúr við Listaháskóla Íslands
Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir
arkitekt
Sveinn Bragason
arkitekt
DANSLIST
Keðja Reykjavík – alþjóðlegur dansviðburður
– fyrir frábært framtak
Í október 2010 skapaðist ómetanlegt tækifæri fyrir íslenska danslistamenn þegar þeim gafst kostur á að mæta, kynnast og tengjast 250 alþjóðlegum listamönnum og menningarstjórnendum frá 22 löndum. Í þeim hópi voru mikilvægir kaupendur sviðsverka. Hátíðin bauð upp á 16 listviðburði af öllum stærðum og gerðum, með megináherslu á dans og samruna hans við aðrar listgreinar, fjölda fyrirlestra, málstofa og umræðna sem leiddar voru af alþjóðlegu listafólki og menningarstjórnendum auk þess sem boðið var upp á ógleymanlega óvissuferð í íslenskri náttúru. Keðja Reykjavík var gríðarlega mikilvægt stefnumót íslenskra sviðslista við umheiminn og skapaði sambönd og tækifæri til samvinnu fyrir þátttakendur sem vonir eru bundnar við til framtíðar. Keðja var samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins, Reykjavik Dance Festival, Sjálfstæðu leikhúsanna, Listaháskóla Íslands og Borgarleikhússins.
Sigríður Soffía Níelsdóttir
– fyrir fjölbreyttan árangur á árinu 2010
Árið 2010 var viðburðaríkt hjá þessum unga listamanni sem kom fram með hvelli á árinu. Með viljakraftinn að vopni, hugrekki og ástríðu hefur Sigríður stigið óhindrað yfir hvers kyns mörk. Undir merkjum Bristol Ninja Cava Crew vann hún að dansinnsetningum/-gjörningum, hún frumsýndi stuttmyndina Children of Eve á stuttmyndahátíð í Bilbao og sýndi dansstuttmyndina Uniform Sierra á yfir tug hátíða í Evrópu og Asíu. Sigríður samdi dans-sirkusverkið Colorblind fyrir Silesian Dance Theatre í Póllandi, 900 02 ásamt Leifi Þorvaldssyni, og Þá skal ég muna þér kinnhestinn með Dansfélaginu Krumma fyrir Reykjavík Dance Festival 2010. Sigríður dansaði í uppsetningu Íslenska dansflokksins á Transaquania – into thin air og ferðaðist erlendis með verk Ernu Ómarsdóttur Teach us to outgrow our madness og eigin verk, Fresh Meet.
Ólöf Ingólfsdóttir
– fyrir ómetanlegt starf í þágu íslensks samtímadans
Ólöf Ingólfsdóttir danshöfundur er brautryðjandi meðal sjálfstætt starfandi danslistamanna og hefur verið driffjöður í að bæta skilyrði í þágu listgreinarinnar á Íslandi. Hún hefur átt frumkvæði að, leitt eða stutt helstu framfaraspor til handa sjálfstætt starfandi danslistamönnum á undanförnum árum. Ólöf er einn stofnenda Reykjavik Dance Festival og leiddi uppbyggingu hátíðarinnar fyrstu árin auk þess sem hún tók virkan þátt í undirbúningi að stofnun dansdeildar Listaháskóla Íslands. Hún átti frumkvæði að umræðu um Danshús á Íslandi um síðust aldamót sem á árinu 2010 leiddi til opnunar Dansverkstæðisins í Reykjavík að Skúlagötu 28. Ólöf var einnig í forystuhóp þeim sem skrifaði á árinu fyrstu Dansstefnu Íslands 10/20, sem er alhliða stefnumótun og framtíðarsýn fyrir íslenskt danssamfélag til næstu 10 ára.
Margrét Sara Guðjónsdóttir
– fyrir Soft Target
Dansverkið Soft Target var frumsýnt á Reykjavík Dance Festival haustið 2010 áður en það fór á sýningaferðalag um Evrópu. Verkið er það fjórða í röð verka danslistamannsins Margrétar Söru Guðjónsdóttur sem sýnd hafa verið frá árinu 2006 og framleidd eru af Panic Production. Í anda ofur-naumhyggju er fagurfræði verksins einstaklega skýr, í senn nákvæm í endurtekningum sínum og dáleiðandi. Verkið er án efa eitt áhrifamesta sólódansverk sem litið hefur dagsins ljós á Íslandi á síðastliðnum árum.
Reykjavík Dance Festival
– fyrir árangursríkt starf í þágu íslenskra áhorfenda
Danshátíðin, stofnuð árið 2002, hefur vaxið og dafnað með hverju árinu og er í dag mikilvægasti vettvangurinn fyrir nýsköpun í íslenskum samtímadansi. Með tilkomu hennar hefur fjöldi danssýninga á hverju ári aukist jafnt og þétt. Þannig hafa möguleikar almennings til að njóta listdans aukist til muna auk þess sem hátíðin hefur náð til nýrra áhorfendahópa og byggt upp tengslin við þá. Árið 2010 voru mörkuð tímamót þegar áhorfendamet var slegið langt umfram það sem áður hafði þekkst. Hátíðin hefur frá upphafi haft úr litlum fjármunum að spila og fengið lága styrki úr opinberum sjóðum. Er sá mikli árangur sem náðst hefur fenginn fyrir óeigingjarnt sjálfboðastarf danslistamanna en samtakamáttur þeirra hefur vakið athygli, jafnt hér heima sem og á alþjóðlegum vettvangi.
Dómnefnd:
Karen María Jónsdóttir, formaður
fagstjóri dansbrautar Listaháskóla Íslands
Kama Jezierska
danslistamaður
Peter Anderson
danslistamaður
FRÆÐI
Aðdragandi og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengdir atburðir.
-Höfundar rannsóknarnefnd Alþingis og undirnefndir. Ritstjórar Páll Hreinsson, Sigríður Benediktsdóttir, Tryggvi Gunnarsson.
Í þessari löngu og miklu skýrslu er sögð dramatísk og sorgleg saga um vanhæfni, oflæti og ráðleysi íslenskra stjórnvalda, embættismanna, bankamanna og kaupsýslumanna, sem keyrðu samfélagið í þrot haustið 2008. Skýrslan er afar vel unnin og átti góðan þátt í að bjarga því sem eftir var af geðheilsu Íslendinga árið 2010.
Birgir Andrésson - Í íslenskum litum.
-Höfundur Þröstur Helgason.
Birgir var einn litríkasti og skemmtilegasti listamaður okkar þegar hann lést fyrir skömmu langt fyrir aldur fram. Í þessari bók talar hann sínu eigin máli á kjarnyrtan og skorinorðan hátt, og bæði vandað framlag Þrastar og þau verk sem birtar eru myndir af í bókinni sýna nýstárlega mynd af eftirminnilegum listamanni.
Fnjóskdælasaga.
-Höfundur Sigurður Bjarnason. Ritstjórar Róbert Herbertsson, Sigurður Jósefsson og Jón Aðalsteinn Hermannsson.
Sigurður, sem lést 1951, var alþýðlegur fræðaþulur á borð við þá sem björguðu stórum hluta íslenskrar þjóðmenningar og arfleifðar frá gleymsku, þótt ekki væru þeir fræðimenn í akademískum skilningi orðsins. Með útgáfunni halda ritstjórarnir við rödd og ástríðu íslenskrar alþýðufræðimennsku. Þetta er alfarið framtak áhugafræðimanna og grúskara, sem hafa tileinkað sér margt af aðferðum og yfirbragði atvinnufræðimennsku án þess að glata rödd safnarans og áhugamannsins.
Konan sem fékk spjót í höfuðið – Flækjur og furðuheimar vettvangsrannsókna.
-Höfundur Kristín Loftsdóttir.
Höfundur dvaldi við rannsóknir meðal WoDaaBe-manna í eyðimörkinni í Níger í tvö ár og í þeim borgum þar sem þeir leita sér verkamannavinnu í fátækt sinni. Í bókinni veitir Kristín Loftsdóttir einstæða innsýn í líf þessa fólks og fléttar inn í umræðum um vettvangsrannsóknir og fræðastörf á síðustu árum.
Þar sem fossarnir falla – Náttúrusýn og nýting fallvatna á Íslandi 1900–2008.
-Höfundur Unnur Birna Karlsdóttir.
Á áhugaverðan og fróðlegan hátt rekur höfundur breytingar sem urðu á náttúrusýn Íslendinga á rétt rúmri öld, frá hugmyndum landsmanna um þá möguleika og umbætur sem fylgja myndu rafvæðingunni til hugmynda nútímans um friðun náttúru gegn stórfelldri mannvirkjagerð og auðlindanýtingu.
Dómnefnd:
Illugi Jökulsson, formaður
blaðamaður og rithöfundur
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir
ritstjóri
Viðar Hreinsson
bókmenntafræðingur og rithöfundur
HÖNNUN
Sigga Heimis
Vöruhönnuðurinn Sigga Heimis hefur á undanförnum árum látið til sín taka í hinum alþjóðlega hönnunarheimi. Hún var ráðin hönnuður hjá IKEA í upphafi síðasta áratugar og starfaði þar við afar góðan orðstír. Árið 2008 var Sigga síðan ráðin hönnunarstjóri hjá hinum þekkta danska húsgagnaframleiðanda Fritz Hansen. Auk þess hefur hún starfað við fjölda erlendra háskóla og unnið verkefni fyrir virtar stofnanir á borð við Vitra-hönnunarsafnið í Þýskalandi. Það voru því gleðitíðindi þegar hún tilkynnti nú í janúar um stofnun stúdíós hér heima, í Toppstöðinni í Elliðaárdal.
Hönnunarsafn Íslands setti upp afar vel heppnaða sýningu á verkum Siggu í lok síðasta árs, sem vakti athygli og var fjölsótt, bæði af fagfólki og áhugafólki. Enda vissu kannski ekki allir af þessum hæfileikaríka hönnuði, sem margir eiga þó vörur eftir og kannast við af plakötum á víð og dreif um IKEA.
Andersen & Lauth
Hjónin Gunnar Hilmarsson og Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir blésu lífi í heiti fyrsta klæðskeraverkstæðisins í Reykjavík, Andersen & Lauth, þegar þau byrjuðu að hanna fatalínur undir því árið 2007. Þökk sé dugnaði þeirra og flottri hönnun hefur merkið dafnað vel síðan og er nýjasta lína þess til að mynda seld í um 500 verslunum um allan heim. Enda kunna þau Gunni og Kolla vel til verka og eru fötin falleg og vönduð. Þau eiga einnig að baki vel heppnað samstarf við aðra aðila, til dæmis Urban Outfitters, og hafa síðustu ár sett sitt mark á Laugaveginn með tveimur glæsilegum Andersen & Lauth-verslunum.
Kraum
Verslunin Kraum í Aðalstræti var sett á laggirnar árið 2007. Frá upphafi var markmið hennar að koma á framfæri og selja íslenska hönnun. Hún er því hin fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Síðan þá hefur Kraum stutt vel við bakið á íslenskum hönnuðum og sýnt það og sannað að þangað er hægt að leita til að finna það nýjasta og besta í íslenskri hönnun. Kraum hefur einnig tekið virkan þátt í íslensku hönnunarlífi með því að standa að samkeppnum hönnuða, meðal annars þar sem gerðir voru nytjahlutir eftir verkum Errós og Ásmundar Sveinssonar. Að undanförnu hefur Kraum einnig fært út kvíarnar, fjórða útibú hennar opnaði nýlega í Hönnunarsafni Íslands, og stuðlar Kraum þannig að því að gera íslenska hönnun aðgengilegri áhugasömum kaupendum.
Kría Jewelry
Jóhanna Metúsalemsdóttir hannar skartgripi undir merkinu Kría Jewelry. Fyrsta línan kom á sjónarsviðið fyrir um þremur árum og lofaði hún strax góðu. Í skartgripalínunni eru um 40 gripir sem eru innblásnir af kríubeinum og trjágreinum, meðal annars hryggjarliður á leðurbandi og lærbein með demanti. Umgjörðin var einnig til fyrirmyndar en gripirnir voru seldir í leðurpokum sem líta út eins og kríuegg. Jóhanna býr og starfar í New York. Hún sendi frá sér nýja línu í fyrra sem var ekki síður áhugaverð. Enda hefur hún vakið athygli ytra og verið notuð sem fylgihlutur í vinsælum sjónvarpsþáttum og í tískuþáttum virtra ljósmyndara. Þá er það til eftirbreytni að hluti af ágóða Kríu Jewelry rennur til hjálparstarfs á Haítí. Von er á nýrri línu frá Jóhönnu á árinu og verður spennandi að fylgjast með henni.
Kron by Kronkron
Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson, eigendur og hönnuðir Kron by Kronkron, byrjuðu að hanna sína eigin skólínu árið 2008. Skórnir hafa síðan notið vinsælda um heim allan og ekki síst hér á Íslandi. Hugrún og Magni hafa sýnt mikinn dugnað og eljusemi í gegnum árin. Þau hafa einnig vaxið í hönnun sinni, eins og sást meðal annars með haustlínu síðasta árs. Þá færðu Hugrún og Magni einnig út kvíarnar og settu á markað fyrstu fatalínu sína. Í línunni eru kjólar og sokkabuxur. Hún er í skemmstu máli afar vel heppnuð. Einnig ber að geta verslana þeirra, Kronkron og Kron við Laugaveg, en í gegnum þær hafa þau kynnt vandaða hönnun fyrir Íslendingum og sett svip sinn á íslenskt tískusamfélag.
Dómnefnd:
Tinni Sveinsson, formaður
blaðamaður og vefstjóri Vísis
Hörður Kristbjörnsson
grafískur hönnuður
Sara McMahon
blaðamaður
KVIKMYNDIR
Bíó Paradís - Heimili kvikmyndanna
Bíó Paradís - Heimili kvikmyndanna fyrir að vera það og staður fyrir kvikmyndaunnendur til að sjá fjölbreytilegar kvikmyndir. Bíó Paradís leggur áherslu á evrópskar og íslenskar kvikmyndir, heimildamyndir, stuttmyndir, og alþjóðlega vandaða titla. Einnig fyrir að vera vettvangur og samverustaður fyrir kvikmyndaáhugamenn og almenning til að kynnast kvikmyndasögunni og skiptast á skoðunum.
Valdís Óskarsdóttir
Valdís Óskarsdóttir klippari fyrir framlag sitt til alþjóðlegrar og íslenskrar kvikmyndagerðar nú síðast fyrir verðlaunamyndina Brim. Valdís Óskarsdóttir hefur unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna og unnið með mörgum þekktustu núlifandi kvikmyndaleikstjórum heims. Verk klipparans í myrkvuðu herbergi virðist oft gleymast en Valdís hefur sýnt það og sannað að klipparinn getur gert gæfumuninn með framlagi sínu til kvikmyndalistarinnar.
Dagur Kári
Dagur Kári fyrir kvikmyndina Good Heart sem er einstaklega vel skrifuð, listræn kvikmynd sem sameinar hinar ýmsu hliðar kvikmyndalistarinnar í sannfærandi og heilsteypt verk. Kvikmyndin býr yfir ljóðrænni dulúð og næmum húmor sem oft einkennir myndir hans og er í raun listrænt afrek. Dagur Kári hefur sýnt það og sannað að hann er sívaxandi listamaður og kemur áhorfandanum á óvart með óþrjótandi hugmyndaflugi í hverri mynd.
Örn Marinó og Þorkell
Örn Marinó Arnarsson og Þorkell Harðarson fyrir framlag þeirra til heimildamyndagerðar, m.a. fyrir Fálkasögu sem hefur fengið lof og verið sýnd á mörgum alþjóðlegum kvikmyndahátíðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Með þrautsegju sinni hafa þeir gefið öðrum von um að það sé hægt að láta drauma sína rætast og koma íslenskri heimildamyndagerð á framfæri á erlendri grund.
Dögg Mósesdóttir
Dögg Mósesdóttir fyrir hina ört vaxandi alþjóðlegu kvikmyndahátíð: Northern Wave Film Festival á Grundarfirði sem leggur áherslu á að sýna stutt- og tónlistarmyndir. Einnig fyrir það framtak að leiða saman bæði íslenska og erlenda tónlistar- og kvikmyndagerðarmenn og gefa litlum bæ á köldum dögum dagsljós og líf.
Dómnefnd:
Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður
formaður félags kvikmyndagerðarmanna
María Reyndal
leikstjóri
Stefanía Thors
klippari
LEIKLIST
Atli Rafn Sigurðsson
– fyrir að leika hlutverk Ólafs Thors í Eilífri óhamingju eftir Andra Snæ Magnason og Þorleif Arnarson og Játgeir í Lé konungi Shakespeares
Atli Rafn hefur á undanförnum árum sannað sig sem einn af öflugustu leikurum sinnar kynslóðar. Hann býr yfir miklu tæknilegu öryggi í raddbeitingu og líkamlegri tjáningu og sýndi það eftirminnilega í Eilífri óhamingju. Í Lé konungi tókst honum að gæða eina erfiðustu mannlýsingu leiksins þeim innri styrk sem hún þarf á að halda til þess að verða trúverðug.
Bernd Ogrodnik
– fyrir Brúðuheima í Borgarnesi
Íslensk leikbrúðulist hefur sótt mjög í sig veðrið á síðustu árum. Fáir hafa staðið framar í þeirri hreyfingu en Bernd Ogrodnik. Hann er afar listfengur brúðugerðarmaður og hefur vakið verðskuldaða eftirtekt bæði fyrir eigin sýningar og framlag sitt til annarra sýninga, einkum í Þjóðleikhúsinu. Á síðasta ári var brúðulistamiðstöðin Brúðuheimar opnuð í Borgarnesi, en hana hefur Bernd byggt upp ásamt eiginkonu sinni Hildi Jónsdóttur. Brúðuheimar er einstakt sambland af fjölbreyttu safni og lifandi leikhúsi, auk þess sem framtakið er frábært dæmi um það hvernig hægt er að efla menningarlíf á landsbyggðinni.
Gísli Örn Garðarsson
– fyrir leikstjórn á Faust, leikriti hans, Nínu Daggar Filippusdóttur, Björn Hlyns Haraldssonar og Víkings Kristjánssonar upp úr Faust Goethes
Gísli Örn hefur verið fyrirliði Vesturports-hópsins sem sett hefur mikinn svip á íslenska leiklist undanfarin ár. Hópurinn hefur starfað jöfnum höndum erlendis sem hér á landi, unnið að lifandi leiklist og kvikmyndum. Faust var frumsýndur í Borgarleikhúsinu snemma á síðasta ári og hefur síðan verið sýndur bæði í Englandi og Þýskalandi. Gísli Örn er hugmyndaríkur og smekkvís leikstjóri sem hefur náð að þróa ákveðinn stíl í náinni samvinnu við leikendaflokkinn, stíl sem sjaldan eða aldrei hefur notið sín betur en í sýningu þeirra á Faust.
Ólafur Egill Egilsson
– fyrir leikgerð sína á skáldsögu Auðar Jónsdóttur, Fólkið í kjallaranum, sem sýnd var í Borgarleikhúsinu undir leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur.
Leikgerðir skáldsagna hafa skipað stóran sess í innlendri leiksköpun síðustu áratuga, þó að þær hafi löngum verið harla misjafnar að gæðum. Í sviðsaðlögun sinni á Fólkinu í kjallaranum hefur Ólafur Egill valið og hafnað úr texta Auðar með það fyrir augum að skapa gott frásagnarflæði innan þeirrar marka sem leiksviðið setur. Árangurinn varð heilsteypt verk sem leikstjóri, leikmyndateiknari og leikendur nýttu sér til að skapa eina bestu leiksýningu ársins.
Ilmur Kristjánsdóttir
– fyrir Klöru í Fólkinu í kjallaranum eftir Auði Jónsdóttur og Ólaf Egil Egilsson og Jón Grinvicensis í Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness og Benedikt Erlingsson
Ilmur hefur á sínum stutta leiklistarferli sýnt að í henni býr vaxandi og fjölhæf leikkona sem getur bæði fengist við og túlkað dramatísk sem tragíkómísk hlutverk. Það sýndi hún okkur eftirminnilega í tveimur sýningum á síðasta ári, annars vegar sem hin ráðvillta og meðvirka Klara í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Fólkinu í kjallaranum og hins vegar sem hinn barnslegi og sérlundaði fræðimaður Jón Grinvicensis skrifari og aðstoðarmaður Arnasar Arnæusar í sýningu Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni.
Dómnefnd:
Jón Viðar Jónsson, formaður
leikdómari DV
Hlín Agnarsdóttir
leikstjóri og rithöfundur
Þorgerður E. Sigurðardóttir
dagskrárgerðarmaður
MYNDLIST
Katrín Sigurðardóttir
Katrín hefur sýnt mikið undanfarin ár hér heima en ekki síst í Bandaríkjunum þar sem verk hennar hafa hlotið mikla athygli. Nú síðast var hún fengin til að búa til verk til sýningar í tveimur sölum Metropolitan-safnsins í New York þar sem hún vinnur í samræðu við safneignina. Verk Katrínar snúast gjarnan um hið manngerða umhverfi en snúa upp á sjónarhorn áhorfandans á ýmsa vegu. Þannig hjálpar Katrín okkur til að skilja umhverfi okkar upp á nýtt og endurmeta rýmisupplifun okkar.
9 – samsýning ungra listamanna í Gerðarsafni
Birta Guðjónsdóttir var sýningarstjóri einnar áhugaverðustu sýningar ársins 2010 í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni. Listamennirnir voru Berglind Jóna Hlynsdóttir, Bjarki Bragason, Etienne de France, Gunndís Finnbogadóttir, Helga Björg Gylfadóttir, Logi Bjarnason, Páll Haukur Björnsson, Steinunn Gunnlaugsdóttir og Styrmir Guðmundsson. Verkin á sýningunni tóku á ólíkan hátt á „persónulegri og samfélagslegri pólitík, pólitískum rétthöfum, valdhöfum, rétthugsun, ranghugsun, hagsmunum og siðferði“.
Páll Haukur Björnsson
Sumarið 2010 sýndi Páll Haukur verkið Hin þráláta endurtekning og kúreki sem hann kallaði „höggmyndaleikverk“. Aðeins tveir áhorfendur gátu upplifað verkið í senn og var farið með þá í eins konar óvissuferð um Reykjavík þar sem þeir urðu vitni að innsetningum og gjörningum listamannsins. Verkið sjálft var áhugavert og vel útfært en er hér tilnefnt til verðlauna ekki síst fyrir að brjóta upp hið hefðbundna sýningarform og -rými og endurskilgreina þannig samband listamanns og áhorfenda.
Hrafnhildur Schram
Hrafnhildur lærði listasögu í Lundi og hefur síðustu áratugi starfað við kennslu, sýningarstjórn og rannsóknir, auk þess sem hún hefur verið forstöðumaður Listasafns Ásgríms Jónssonar og Listasafns Einars Jónssonar, og deildarstjóri í Listasafni Íslands. Hrafnhildur er tilnefnd fyrir rannsóknir sínar á þætti kvenna í íslenskri myndlist en hún gaf meðal annars út um það efni bókina Huldukonur í íslenskri myndlist árið 2005. Árið 2010 stýrði hún sýningunni Með viljann að vopni um myndlist íslenskra kvenna og kvennapólitík á áttunda áratugnum.
Einar Garibaldi Eiríksson
Sýning Einars í Galleríi Ágúst í Reykjavík bar yfirskriftina Grand Tour og samanstóð af „fundnum málverkum“ – í raun skiltum sem á Ítalíu eru sett upp ökumönnum til viðvörunar þar sem eftir er að mála línur á nýmalbikaðar götur. Skiltin eru frá mismunandi bæjum og borgum og endurskapa þannig sígilt túristaferðalag um landið. Einar er einn af íhugulustu listamönnum okkar og þessi sýning staðfesti tök hans á viðfangsefni sínu: Í senn einföld og umhugsunarverð, þannig að fagurfræðileg nálgun og hugmyndalist falla fullkomlega saman í eina heild.
Dómnefnd:
Jón Proppé, formaður
listheimspekingur
Hanna Styrmisdóttir
sýningarstjóri
Markús Þór Andrésson
sýningarstjóri
TÓNLIST
Bjartmar Guðlaugsson
Bjartmar Guðlaugsson snéri aftur tvíefldur og með látum árið 2010 með hljómsveit sinni Bergrisunum og gaf út eina bestu íslensku plötu ársins. Skrýtin veröld hefur að geyma einn stærsta slagara síðasta árs, Negril, auk fleiri ógleymanlegra smella sem hljómað hafa á öldum ljósvakans undanfarið. Endurkoma Bjartmars skilaði þessum ástsæla laga- og textasmiði þremur tilnefningum til Íslensku tónlistarverðlaunanna á dögunum enda standast honum fáir snúning þegar hann er upp á sitt besta. Það var hann svo sannarlega árið 2010.
Jóel Pálsson
Jóel Pálsson hefur fyrir löngu skipað sér í flokk okkar fremstu djassleikara og höfunda. Á sinni nýjustu plötu, Horn, hefur hann fengið til liðs við sig framvarðarsveit íslenskra djassleikara og eru tónsmíðar Jóels í samræmi við þennan fríða flokk sem hann velur sér til meðreiðar. Frumlegar og fjölbreyttar tónsmíðar í frábærum flutningi.
Kristinn Sigmundsson
Stórsöngvarann Kristin Sigmundsson er í raun óþarft að kynna. Hans svið eru stærstu svið heimsins og hans samstarfsfólk er í fremstu röð. Íslendingar fengu að njóta Kristins á sviði og með nútímatækni á liðnu ári. Á sviði Metropolitan í Rósariddara Richards Strauss var hann ásamt fremstu söngvurum heimsins meðal jafninga og við fengum að njóta í beinni í óperubíói.
Á Listahátíð söng hann með Sinfóníuhljómsveit Íslands og bauð til veislu sem samanstóð af óperuaríum sem hann hefur sungið í áranna rás og standa honum nærri. Stórkostlegur flutningur mikils listamanns.
Kammerkórinn Carmina
Kammerkórinn Carmina hefur á undanförnum árum vakið verðskuldaða athygli hérlendis og erlendis fyrir afburða fágaðan flutning og má í því sambandi nefna einstaka tónleika kórsins á Listahátíð. Efnistök kórsins hafa sömuleiðis vakið athygli ekki síður en framúrskarandi flutningur.
Að þessi sinni eru rannsóknum stjórnanda og stofnanda kórsins, dr. Árna Heimis Ingólfssonar, á sálmasöfnum 18. aldar gerð skil á nýjum diski, Hymnodia Sacara, í frábærum flutningi Carminu. Hljómdiskur þessi er mikilvægt innlegg í tónlistarsöguna.
Agent Fresco
Hljómsveitin Agent Fresco hefur verið jafnt og þétt á uppleið frá því að hún sigraði á Músíktilraunum 2008. Agent Fresco var valin nýliði ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2009 og sendi á árinu 2010 frá sér sína fyrstu breiðskífu, A Long Time Listening, sem fékk frábærar dóma. Plata ársins að margra mati og þykir hljómsveitin langt komin í lagasmíðum sínum og útsetningum miðað við stuttan starfsaldur. Þá hefur kraftmikið tónleikahald Agent Fresco ekki síður vakið athygli.
Dómnefnd:
Ásgeir Jónsson, formaður
blaðamaður á DV
Eldar Ástþórsson
framkvæmdastjóri Kraums, markaðsstjóri hjá CCP
Helgi Jónsson
tónlistarfræðingur við Listaháskóla Íslands



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
