Meirihluti þeirra sem spurðir voru sögðust styðja ákvörðun Ólafs Ragnars að vísa málinu til þjóðarinnar. Að sama skapi sögðust fleiri en færri ætla að samþykkja fyrirliggjandi samning í þjóðaratkvæðagreiðslu. Mynd Róbert Reynisson
Samkvæmt könnun MMR, um viðhorf Íslendinga til ákvörðunar forseta Íslands um að hafna nýjustu Icesave-lögunum, vildu 57,7 prósent samþykkja lögin kæmu þau til atkvæðagreiðslu í dag. Af þeim sem tóku afstöðu voru 60,7 prósent sem sögðust styðja ákvörðun forsetans um að staðfesta ekki lögin og vísa þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Í tilkynningu sem MMR sendi frá sér í kvöld vegna könnunarinnar kemur fram að áberandi andstaða var við ákvörðun forsetans meðal stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar. 74,3 prósent þeirra kváðust ekki styðja ákvörðun forsetans. Á hinn bóginn voru 76,5 prósent þeirra sem sögðust andvígir ríkisstjórninni styðja ákvörðun forsetans.
Ef horft er til afstöðu til komandi kosninga eftir stuðningi við stjórnmálaflokka má sjá að helmingur sjálfstæðismanna, eða 49,9 prósent hyggst kjósa með Icesave-lögunum samanborið við 37,4 prósent framsóknarmanna, 83,1 prósent Vinstri-grænna og 96,7 prósent samfylkingarfólks.
Spurt var: Styður þú ákvörðun forseta Íslands um að staðfesta ekki nýjustu Icesave lögin og vísa þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu? og Ef kosið yrði um nýjustu Icesave lögin í dag, hvort myndir þú kjósa með eða á móti?
Samtals tóku 90,1 prósent afstöðu til spurningar um ákvörðun forsetans og 74,7 prósent tóku afstöðu til spurningar um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu. 771 einstaklingur svaraði könnuninni sem fram fór í gær og í dag.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
