Tvö þeirra sem eru ákærð fyrir árás á Alþingi urðu fyrir aðkasti að hálfu lögreglunnar um helgina, að sögn sjónarvotts.
Hópur lögreglumanna eltu einn níumenninganna svokölluðu inn á barinn Hemma og Valda á Laugaveginum aðfaranótt laugardags og hrintu honum á milli sín, að sögn sjónarvotts. Fjöldi gesta staðarins varð vitni að atvikinu sem átti sér stað um klukkan 02.30 aðfaranótt laugardags.
„Á eftir honum komu fjórir eða fimm fullorðnir menn sem ætluðu að ráðast á hann, það var alveg greinilegt,“ segir vitnið Birkir Björns Halldórsson í samtali við DV. Þegar hann hótaði því að hringja á lögregluna segir hann einn mannanna hafa svarað: „Við erum lögreglan.“ Hann segist persónulega hafa þekkt tvo lögreglumenn úr hópnum.
Heimildir DV renna stoðum undir þá frásögn að hópur lögreglumanna á frívakt hafi verið að verki. Tvö níumenninganna, þau Snorri Páll Jónsson og Steinunn Gunnlaugsdóttir, urðu ásamt fleirum fyrir aðkasti lögreglumannanna þetta kvöld. Þau vildu hvorugt tjá sig um málið í samtali í samtali við DV. Athygli vekur að sama dag, eða síðastliðinn föstudag, var mál lögreglustjórans á höfuðborgarsvæiðinu gegn Snorra Páli tekið fyrir í héraðsdómi. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hafði ekki heyrt um atvikið þegar haft var samband við hann.
„Það var mjög asnalegt að horfa upp á þetta. Ég sá að þeir voru í vígahug og ég skipaði þeim að fara út, þeir sögðu mér að þegja og voru með einhverja stæla við mig,“ segir Birkir. Hann segir mennina hafa gengið um ógnandi og síendurtekið hafi þeir ýtt fórnarlömbum sínum á veggi og skápa.
„Þeir lögðu aldrei beint hendur á hann, þetta leit meira út eins og svona eineltistilburðir, þeir pössuðu sig á því að hrinda honum bara,“ segir Birkir. Hann segir dyravörð Hemma og Valda hafa þurft að biðja um aðstoð frá dyravörðum Ólivers til að koma ofbeldismönnunum út af staðnum. Þá segir hann mennina ekki hafa yfirgefið staðinn fyrr en hann hótaði að taka þá upp á myndband.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
