ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

110 milljarða skuldir Styttu

Skilnefndin vill fá 1,5 milljarða punda fyrir Iceland-keðjuna
22:45 › 7. desember 2011
Eignarhaldsfélagið Stytta var stofnað til að kaupa hlutabréf eignarhaldsfélagsins Fons, sem var í eigu Pálma Haraldssonar, í Iceland-keðjunni í aðdraganda bankahrunsins.

Eignarhaldsfélagið Stytta var stofnað til að kaupa hlutabréf eignarhaldsfélagsins Fons, sem var í eigu Pálma Haraldssonar, í Iceland-keðjunni í aðdraganda bankahrunsins. Mynd: DV

Eignarhaldsfélagið Stytta skuldar rúmlega 596 milljónir punda, rúmlega 110 milljarða króna, þetta kemur fram í ársreikningi Styttu fyrir árið 2010 sem skilað var til ríkisskattstjóra í september.

Stytta var stofnað í júlí 2008 til að kaupa tæplega 30 prósenta hlut eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar í Fons í Iceland-keðjunni bresku fyrir um 430 milljónir punda, um 80 milljarða króna á gengi dagsins í dag. Stytta var í eigu Stoða og þriggja lykilstarfsmanna Iceland-keðjunnar, Malcolms Walker, Andrews Pritchard og Tarsems Dhaliwal. Líkt og DV greindi frá í febrúar síðastliðinn var rúmlega 48 milljarða króna lán Landsbanka Íslands til Styttu, sem notað var til að kaupa hlutabréfin af Fons, í ágúst 2008 ákvarðað nákvæmlega út frá skuldum Fons við bankann á þeim tíma.

Skilanefnd Landsbankans hefur yfirtekið hlutabréf Styttu í Iceland-keðjunni og vinnur nú að því að selja hlutabréfin í verslanakeðjunni. Skilanefndin vill fá 1,5 milljarða punda fyrir Iceland-keðjuna en hingað til hefur enginn áhugasamur aðili viljað bjóða meira en 1,3 milljarða punda í hana.

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?