Milljón á mánuði of lítið fyrir Landsbankastjóra

Undirmenn með hærri laun en bankastjórinn sem vill breytingar

„Ég segi oft að ég sé sá bankamaður á Íslandi sem er með lægst laun fyrir unna stund. Því það að vera bankastjóri Landsbankans er talsvert mikil vinna,“ sagði Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, viðtalsþættinum Klinkið á vísi.is.

Var bankastjórinn spurður að því hvort betri tíð væri í vændum fyrir hann launalega séð í nánust framtíð, í ljósi þess að stjórnendur hinna viðskiptabankanna eru með miklu hærri laun en hann. Steinþór er til að mynda aðeins með einn þriðja af launum bankastjóra Arion banka á mánuði.

Steinþór sagðist hafa verið með langtum hærri laun hjá Actavis áður en hann tók við stöðu bankastjóra hjá ríkisbankanum. Þorbjörn Þórðarson spurði þá hreint út hvers vegna hann hafi verið að skipta um vinnu.

„Jah, það er nú það. Þetta var áskorun og maður las sér til og það stefndi allt í það að þessu yrði breytt undir lok árs 2010. Þetta gerðist með lögum árið 2009 að hlutafélög sem ríkið á meirihluta í voru sett undir kjararáð. Þá voru Íslandsbanki, Arion banki og Landsbanki öll í þessari stöðu. Allir viðskiptabankarnir voru í sama umhverfi.“

Síðan hafi orðið breyting hjá hinum bönkunum og Landsbankinn sat eftir, einn undir kjararáði.

„Þetta er mjög óeðlilegt. Þetta er skrýtið að ríkið fer fram og skapar sér einhverja sérstöðu, að það sé ekki sama lagaumhverfi fyrir alla viðskiptabankana,“ sagði Steinþór. Hann benti á að þessi staða, að Landsbankinn þurfi að búa við aðra lagalega stöðu vegna þess að ríkið sé hluthafi, væri lagalega á mjög gráu svæði. Allir ættu að sitja við sama borðið.

Þorbjörn spurði hvort það væri ekki svo að margir undirmenn Steinþórs væru með hærri laun en bankastjórinn.

„Jú, það er nauðsynlegt til að tryggja samkeppnisstöðu. En þetta ruglar samkeppnisstöðuna samt sem áður.“

Steinþór sagði aðspurður að eðlilegast væri að stjórnsýslan og löggjafinn myndu breyta þessu þannig að allir viðskiptabankarnir sætu við sama lagaumhverfi.

Þegar Þorbjörn spurði hvort ekki væri hægt að snúa þessu upp á hinn veginn og segja að stjórnendur hinna bankanna væru bara með allt of há laun sagði Steinþór að kannski mætti segja það.

„Ég er með rétt rúma milljóna á mánuði með öllu. Allt talið, bíll og internettenging heima hjá mér sem kemur til frádráttar. Þannig að ég held að það séu of lág laun.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.