ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Félag Hannesar í þrot

FI fjárfestingar tæknilega gjaldþrota strax í árslok 2007
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:53 › 29. desember 2011

Félagið FI fjárfestingar, félag fjárfestisins Hannesar Smárasonar hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta og verður skiptafundur í mars á næsta ári. FI fjárfestingar, áður Primus, sem var stærsta félag Hannesar og var móðurfélag Eignarhaldsfélagsins EO, Eignarhaldsfélagsins Sveipur, Hlíðasmára 6. og Runnur 4 Félagið hefur ekki skilað ársreikningi frá árinu 2007 en samkvæmt þeim reikningi var félagið orðið tæknilega gjaldþrota strax í árslok 2007. Eigið fé FI fjárfestinga var þá neikvætt um nærri 4 milljarða króna.

DV hefur áður greint frá því að öll félög Hannesar Smárasonar stefni í þrot. Nýlegir ársreikningar fjögurra eignarhaldsfélaga Hannesar fjárfestis sýna erfiða stöðu þessa félaga. Þessi eignarhaldsfélög eiga það öll sameiginlegt að Hannes skilaði ekki inn ársreikningum félaganna fyrir árið 2008; ársreikningar fyrir 2009 skiluðu sér hins vegar til ársreikningaskrár í seinni hluta apríl.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?