Sextíu og sjö prósent allra seldra tækja hjá Símanum þessi jólin voru snjallsímar. Þegar fjöldi seldra síma er skoðaður samanborið við síðustu ár kemur í ljós að jafnmargir símar seldust í ár og góðærisárið mikla 2007 þegar af störfum og erlendum seðlum var nóg á Fróni.
Ef það er ekki nóg þá kemur fram í tilkynningu frá Símanum að meðalverð seldra síma þessi jólin er um það bil tvöfalt hærra en árið 2007. Jólabörnin sem voru svo heppin að fá nýjan síma í pakkann sinn á aðfangadagskvöld ættu því að vera í góðu sambandi.
Til samanburðar þá var hlutfall snjallsíma 33 prósent af öllum seldum tækjum hjá Símanum í fyrra. Næst mest seldi síminn hjá fyrirtækinu fyrir þessi jól var Samsung Galaxy S II sem kostar rétt tæplega hundrað þúsund krónur.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Lífvænleg pláneta uppgötvuð utan okkar sólkerfis
Zuckerberg samdi einn við Instagram
Facebook kaupir Instagram á milljarð dala
Milljónir keyptu sér iPad 3
Facebook meira ávanabindandi en áfengi og tóbak
