DV greindi frá því í gær að Gabríel Víðir, níu ára drengur sem sætt hefur miklu einelti í skóla, er hættur í Árbæjarskóla. Móðir hans, Elsa Margrét Víðisdóttir sagði sögu drengsins, sem er níu ára og glímir við ýmiss konar geðraskanir, í DV í lok október. Eftir að Elsa Margrét sagði sögu Gabríels birtist önnur frétt þar sem greint var frá því að hann hefði komið heim með bólgna vör.
Móðir hans segir að einn daginn hafi hann komið grátandi heim, allur í drullu og illa til hafður og með bólgna vör. Hann gaf þá skýringu að honum hefði verið haldið niðri af fjórum strákum sem hefðu nuddað honum upp úr moldinni og við það hefði vörin sprungið. Skólayfirvöld töldu hins vegar að það stæðist ekki að Gabríel hefði lent í árekstrum í skólanum því grannt væri fylgst með honum. „Eins og ég sagði þá átti að kanna það og niðurstaðan var sú að Gabríel hefði spunnið þetta upp.“
Elsa Margrét á hins vegar bágt með að trúa því. „Gabríel getur auðveldlega rangtúlkað atburði og þess vegna þarf ég alltaf að þráspyrja hann um það sem hann segir. En hann lýgur ekki upp árás, veitir sér áverka og veltir sér upp úr drullu. Ástandið á honum var þess eðlis að hann hefði aldrei gert þetta sjálfur, svo ég skil ekki hvernig það var hægt að komast að þessari niðurstöðu.“
Elsa Margrét segir að hún hafi jafnframt fengið ákúrur fyrir að fjalla um málið í blöðunum. „ Fólk verður líka að átta sig á því að ég var búin að reyna allt. Þetta var síðasta úrræðið.“
Tengdar fréttir
Gabríel Víðir hættur í Árbæjarskóla



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
