ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Bjarni Ben kom að ,,stórfelldu" lögbroti

Tveir ákærðir fyrir umboðssvik í Vafningsmálinu
13:21 › 19. desember 2011
Ákært hefur verið í Vafningsmálinu en Bjarni Benediktsson tók þátt í viðskiptunum í febrúar 2008. Hann sést hér á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í nóvember þar sem hann var endurkjörinn formaður flokksins. Nöfn Guðmundar Hjaltasonar og Lárusar Welding, þeirra sem hafa verið ákærðir í Vafningsmálinu, sjást hér einnig á veðsetningarskjölunum.

Ákært hefur verið í Vafningsmálinu en Bjarni Benediktsson tók þátt í viðskiptunum í febrúar 2008. Hann sést hér á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í nóvember þar sem hann var endurkjörinn formaður flokksins. Nöfn Guðmundar Hjaltasonar og Lárusar Welding, þeirra sem hafa verið ákærðir í Vafningsmálinu, sjást hér einnig á veðsetningarskjölunum.

  • Undirskrift Bjarna sést hér á veðsetningarpappírunum frá 8. febrúar 2008. Bjarni skrifaði undir lánið fyrir hönd BNT, Hrómundar og Hafsilfurs.

    Undirskrift Bjarna sést hér á veðsetningarpappírunum frá 8. febrúar 2008. Bjarni skrifaði undir lánið fyrir hönd BNT, Hrómundar og Hafsilfurs.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kom að stórfelldu lögbroti í febrúar 2008 þegar hann veðsetti hlutabréf eignarhaldsfélaga föður síns og föðurbróður í eignarhaldsfélaginu. Búið er að ákæra tvo af starfsmönnum Glitnis, Lárus Welding og Guðmund Hjaltason, fyrir umboðssvik í viðskiptunum. Ákæran var gerð opinber í hádeginu í dag og snýst um tíu milljarða króna lánveitingu út úr Glitni þann 8. febrúar 2008.

Lánið var notað til að greiða upp skuld eignarhaldsfélagsins Þáttar International við bandaríska fjárfestingarbankann Morgan Stanley. Skuld Þáttar Intetional við Morgan Stanley var vegna hlutabréfakaupa í Glitni en félagið átti 7 prósenta hlut í bankanum. Þáttur International var í eigu Milestone og Einars og Benedikts Sveinssona. Morgan Stanley hafði, líkt og rakið er í ákærunni, gjaldfellt lánið til Þáttar Internationl þann 5. febrúar 2008. Þáttur International hélt því hlutabréfum sínum í Glitni vegna lánveitingarinnar frá Glitni sem Lárus og Guðmundur hafa nú verið ákærðir fyrir. Ef Glitnir hefði ekki lánað fyrir skuldinni við Morgan Stanley hefði félagið líklega misst bréfin til bandaríska fjárfestingarbankans.

Um þetta segir í ákærunni: ,,Tilgangur lánveitingarinnar var að gera Þætti International mögulegt að endurgreiða Morgan Stanley bankanum lánið sem hafði verið gjaldfellt 5. febrúar 2008, miðað við kl. 15:00 þann 8. febrúar 2008, en fyrirsjáanlegt var að Morgan Stanley gengi að hlutabréfaeign Þáttar International í Glitni, sem stóð að veði fyrir fjárskuldbindingunni og hlutaféð færi þar með á almennan hlutabréfamarkað með hættu á verðfalli hlutabréfa í Glitni."

Líkt og DV hefur greint frá veðsetti Bjarni hlutabréfin í Vafningi fyrir hönd eignarhaldsfélaganna BNT, Hafsilfurs og Hrómundar, sem voru í eigu bræðranna Einars og Benedikts Sveinssona, þann 8. febrúar 2008. Bjarni hafði umboð frá þeim Benedikt og Einari til veðsetningarinnar. Þá liggur fyrir að í febrúar 2008 seldi Bjarni sjálfur hlutabréf sem hann átti persónulega í Glitni. Söluverð bréfanna var um 120 milljónir króna. Um þessi hlutabréfaviðskipti sagði Bjarni við DV fyrr á árinu. „Umrædd hlutabréf voru seld smám saman í febrúarmánuði 2008.“ Líkt og DV greindi frá fyrir skömmu var Bjarni yfirheyrður sem vitni í Vafningsmálinu hjá embætti sérstaks saksóknara fyrr á árinu. Bjarni ræddi um aðkomu sína að málinu í viðtali við DV í desember 2009.

Þar sagði Bjarni meðal annars: „Þeir [Benedikt og Einar, innsk. blaðamanns] voru ekki staddir á landinu og báðu mig um það fyrir sína hönd að skrifa undir ákveðinn veðsamning þar sem þeir voru að veðsetja hlutabréfin sín í félaginu... Þetta var veðsamningur sem gerður var við bankann vegna lána sem bankinn hafði veitt félaginu,“ segir Bjarni en BNT, Hrómundur og Hafsilfur voru í eigu föður Bjarna, Benedikts Sveinssonar, og föðurbróður hans, Einars. „Þegar eigendur þessara hlutabréfa í Vafningi óska eftir því við mig að ég sjái um að veðsetja hlutabréf þeirra í félaginu fyrir þeirra hönd þá geri ég ekkert annað en það og tek engar aðrar ákvarðanir um neitt annað... Þeir gátu ekki farið í bankann þennan dag til að veðsetja bréfin sín í Vafningi. Það var bara verið að ganga frá endurfjármögnun lána í bankanum og það þurfti bara að gerast þennan dag... "

Í ákærunni er rakið hvaða afleiðingar þetta lán í Vafningsmálinu hafði fyrir Glitni. Þar kemur meðal annars fram að fjártjón bankans af því hafi numið rúmlega 50 milljörðum króna og hafi átt þátt í því að Glitnir féll um haustið 2008. Orðrétt segir um þetta í ákærunni: ,,Sú ákvörðun að lána Milestone ehf. 8 febrúar 2008 leiddi því til gríðarlegs fjártjóns fyrir bankann og nemur tjónið amk 53.718.244 evrum. Lánveitingin átti þátt í að Glitnir féll með mjög alvarlegum afleiðingum fyrir kröfuhafa, ríkissjóð og almenning á Íslandi. Óhjákvæmilegt er því að líta svo á að brot ákærðu hafi verið stórfellt. Háttsemi ákærðu beindist að verulega miklum verðmætum og olli mjög mikilli fjártjónshættu. Eru sakir ákærðu svo miklar að við broti þeirra liggur allt að sex ára fangelsi."

Sjá einnig:
„Lánveitingin átti þátt í því að Glitnir féll“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?