Embætti sérstaks saksóknara hefur ákært þá Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, og Guðmund Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Glitnis, fyrir umboðssvik. Samkvæmt ákærunni sem DV hefur undir höndum eru Lárus og Guðmundur, sem báðir voru meðlimir í áhættunefnd bankans, sagðir hafa misnotað aðstöðu sína og stefnt fé bankans í stórfellda hættu með lánvitingu Glitnis til Milestone ehf.
Um var að ræða peningamarkaðslán að fjárhæð rúmlega 102 milljóna evra, sem samsvaraði túmlega 10 milljörðum króna á sölugengi evru á útborgunardegi. Engar tryggingar eða ábyrgðir voru fyrir láninu sem samkvæmt ákæru var andstætt reglum Glitnis banka hf. um lánveitingar og markaðsáhættu um hámark heildarlánveitinga til einstaks aðila og aðila honum tengdum.
Rúma 4 milljarða umfram heimildir
„Ákærðu samþykktu lánveitinguna utan funda áhættunefndar og rituðu undir lánssamninginn fyrir hönd Glitnis banka hf. Á þessum tíma var Milestone ehf. skilgreint í áhættumatsflokki 4 samkvæmt áðurnefndum reglum sem fól í sér að ákærðu, sem meðlimir áhættunefndar, gátu einungis heimilað lánveitingar til félagasamstæðu Milestone ehf., er rúmuðust, ásamt eldri lánum samstæðunnar, innan 17% af eigin fé (CAD) Glitnis banka hf. sem var á þeim tíma 225.576 milljarðar króna,“ segir í ákærunni.
Eru Lárus og Guðmundur sagðir hafa farið út fyrir heimildir sínar með lánveitingunum. Heildarlánveitingar samstæðu Milestone ehf. fóru úr 32.4 í 42,4 milljarða króna, eða úr 14,36 prósentum í 18,80 prósent af eigin fé bankans. Eða 4,1 milljarð króna umfram heimildir.
Milljarðaflétta
Lánsfjárhæðin fór þann 8. febrúar 2008 inn á evru reikning Milestone hjá Glitni en Milestone ráðstafaði sama dag andvirði lánsins til greiðslu á láni Þáttar International ehf. hjá Morgan Stanley-bankanum sem hafði verið gjaldfellt og þurfti að greiða fyrir klukkan 15 þennan sama dag. Þáttur var einkahlutafélag félagasamstæðu Milestone.
Hinn 12. febrúar 2008 millifærði Glitnir svo rúmlega 102 milljónir evra inn á bankareikning Milestone ehf. hjá bankanum og síðar sama dag millifærði bankinn sömu fjárhæð til baka. Um var að ræða andvirði láns sem Glitnir veitti Vafningi ehf. án trygginga. 29. Febrúar 2008 greiddi Svartháfur ehf. til Vafnings 50 milljónir evra sem voru fjármunir sem félagið fékk að láni frá Glitni sama dag og var fjárhæðin færð til lækkunar á láni bankans til Vafnings frá 12. Febrúar. Eftirstöðvar lánsins að nafnvirði 53.718.244 evra hafa ekki verið endurheimtar frá Vafningi ehf.
„Þeirri stórfelldu fjártjónshættu sem ákærðu sköpuðu Glitni banka hf. með lánveitingunni 8. febrúar 2008 var því ekki afstýrt með þeirri ráðstöfun að færa skuldbindinguna yfir á Vafning ehf. 12. febrúar 2008,“ segir í ákærunni sem má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.
Hafði þær afleiðingar að Glitnir féll
Í ákærunni segir að lokum að sú ákvörðun Lárusar og Guðmundar að lána Milestone umrædda upphæð þarna í byrjun febrúar hafi leitt til gríðarlegs fjártóns fyrir bankann sem nemi að minnsta kosti 53.718.244 evrum.
„Lánveitingin átti þátt í því að Glitnir féll í byrjun október 2008 með mjög alvarlegum afleiðingum fyrir kröfuhafa, ríkissjóð og almenning á Íslandi. Óhjákvæmilegt er því að líta svo á að brot ákærðu hafi verið stórfellt. Háttsemi ákærðu beindist að verulega miklum verðmætum og olli mjög mikilli fjártjónshættu. Eru sakir ákærðu svo miklar að við broti þeirra liggur allt að 6 ára fangelsi.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
