ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Svona vekur þú athygli á Facebook

Myndir af fólki vekja mesta athygli en alls ekki setja of mikið inn á síðuna
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:30 › 17. desember 2011
Myndir gera gæfumuninn á Facebook

Myndir gera gæfumuninn á Facebook

Engin samskiptasíða hefur náð jafn miklum árangri og bandaríska vefsíðan Facebook. Fyrir vikið reyna langflest fyrirtæki að koma sér vel fyrir á vefsíðunni og þannig fanga athygli neytenda. Vefsíðan Mashable lét gera athyglisverða rannsókn á dögunum þar sem fylgst var nákvæmlega með því hvað fólk skoðar þegar það opnar Facebook-síður. Fylgst var með þrjátíu einstaklingum þegar þeir skoðuðu Facebook-síður nokkurra bandarískra stórfyrirtækja. Niðurstöðurnar koma kannski ekki mikið á óvart en þær eru þó mjög athyglisverðar.

Þrátt fyrir að ekkert fyrirtæki fengi jafnmikla athygli út á forsíðumyndina sína og Victoria‘s Secret kom berlega í ljós í rannsókninni að það skiptir miklu máli að vera með góðar myndir á síðunni. Í áttatíu og fimm prósent tilfella fönguðu nýjustu myndirnar, sem birtast efst á hverri Facebook-síðu, athygli þeirra sem skoðuðu síðurnar á meðan fólk tók aðeins eftir vinstri hliðarslánni á Facebook-síðunum í fimmtíu og átta prósentum tilfella.

Það virðist vera nær algild regla að myndir með andlitum fá meiri athygli en myndir af vörum. Aðeins ein undantekning var á því, hjá Skittles, en forsíðumynd þess fyrirtækis var eins og nammið sjálft, litríkt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?