Móðurfélag Frumherja, skoðunarfyrirtæki Finns Ingólfssonar, er með eigið fé upp á rúmlega 670 milljónir króna og eignir sem metnar eru á nærri 2,3 milljarða króna. Á sama tíma hafa tvö eignarhaldsfélög í hans eigu verið tekin til gjaldþrotaskipta vegna sjö milljarða króna skulda.
Frumherji, sem er í eigu félagsins Spector sem Finnur Ingólfsson á, hefur átt í viðræðum við viðskiptabanka sinn um fjárhaglega endurskipulagningu félagsins. Í DV á miðvikudag var fjallað um málið.
Þar kom fram að í ársreikningi Frumherja fyrir árið 2009, sem af einhverjum ástæðum er ekki lengur aðgengilegur á vef Ríkisskattstjóra líkt og hann var, kemur fram að óvissa ríki um rekstrarhæfi Frumherja vegna skulda þess. Lárus Finnbogason, endurskoðandi fyrirtækisins, setur fram ábendingu um þennan vafa í ársreikningnum. Heildarskuldir og ábyrgðir Frumherja námu um 6,2 milljörðum í árslok 2009.
Orðrétt segir í ársreikningnum: „Við viljum vekja athygli á skýringu 10 og 12 með ársreikningnum. Í skýringu 10 kemur fram að félagið er í ábyrgðum utan efnahags vegna skulda systurfélagsins Varða ehf. sem nemur um 3,6 milljörðum króna í árslok 2009. Í skýringu 12 er greint frá samkomulagi við viðskiptabanka félagsins og einnig er þar fjallað um þær óvenjulegu aðstæður sem hafa skapast á fjármálamarkaði og þeirrar almennu óvissu sem nú ríkir um áframhaldandi rekstur fyrirtækja landsins. Ekki er fyrirséð hver áhrif fjármálakreppunnar verða á áframhaldandi rekstur félagsins og er því almenn óvissa um rekstrarhæfi þess.“
Frumherji hefur átt í viðræðum við viðskiptabanka sinn um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins, líkt og kemur fram í síðustu tveimur ársreikningnum félagsins. Þessum viðræðum er ekki lokið, samkvæmt heimildum DV, og því liggur ekki fyrir hvort Finnur Ingólfsson mun halda Frumherja til framtíðar, þrátt fyrir skuldir og ábyrgðir upp á sjöunda milljarð króna. Sami banki og Frumherji stundar viðskipti við, Íslandsbanki, sem á veð í eignum félagsins, hefur hins vegar þurft að afskrifa milljarða króna af skuldum annars félags sem tengist Finni.
Áskrifendur geta lesið greinina í heild sinni með því að smella á skrá sig inn á smella á „meira“ hér fyrir neðan:



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
