Fjármálaráðuneytið ætlar að endurskoða reglur um hvernig staðið er að flutningi búslóða starfsmanna á vegum ráðuneytanna. Mynd Eyþór Árnason
Endurskoða á reglur sem gilda um tjónabætur á flutningsskyldum eignum starfsmanna ráðuneytanna. DV hefur greint frá því að gámur sem innihélt bæði búslóð og listaverk í eigu Skafta Jónssonar, starfsmanns sendiráðs Íslands í Bandaríkjunum, hafi kostað íslenska ríkið 75 milljónir króna. Innihald gámsins eyðilagðist þegar sjór flæddi inn í gáminn á leiðinni frá Íslandi til Bandaríkjanna.
Þagnarmúr er í kringum málið og fást engar upplýsingar um það hjá utanríkisráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu eða Skafta sjálfum.
Það er því enn á huldu fyrir hvað íslenskir skattgreiðendur greiddu 75 milljónir króna fyrir í tjónabætur en þau svör sem DV hefur fengið frá utanríkisráðuneytinu eru að það sé einkamál Skafta og eiginkonu hans, sem eru eigendur innihalds gámsins.
Það sem vakið hefur einna mesta athygli í umfjöllun fjölmiðla um málið er sú staðreynd að gámurinn hafi ekki verið tryggður nema að litlu leyti. Það hefur utanríkisráðuneytið sagt að sé vegna vinnureglna ráðuneytanna um að kaupa engar aukatryggingar og taka þess í stað sjálft ábyrgð á mögulegu tjóni.
Engar upplýsingar hafa fengist um hvernig staðið var að mati innihaldsins aðrar en þær að fyrirtækið hafi byggt það á nákvæmu yfirliti yfir búslóðarmuni, ásamt ljósmyndum, fyrir og eftir flutning, auk sjálfstæðrar athugunar á verðgildi einstakra muna. Þá hefur ítrekaðri spurningu DV til utanríkisráðuneytisins um hvað hafi orðið um innihald gámsins ekki verið svarað.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
