Pétur staðfestir þá einnig að enginn á vegum fyrirtækisins Könnunar ehf. sem mat virði innihald gámsins fyrir hönd ríkisins fór til Bandaríkjanna til að meta tjónið. Mynd Eyþór Árnason
Skafti Jónsson fékk að velja hvaða hluti hann vildi eiga eftir að búslóð hans skemmdist í flutningum frá Íslandi til Bandaríkjanna. Ríkið greiddi honum 75 milljónir króna í tjónabætur vegna skemmdanna. „Samkvæmt samkomulagi sem gert var við tjónþola, og hefðbundnu fyrirkomulagi þar að lútandi, fékk tjónþoli heimild til að hirða það sem nothæft væri af búslóðinni,“ segir Pétur Ásgeirsson, sviðsstjóri hjá utanríkisráðuneytinu, við fyrirspurn DV um málið.
Ljóst er að innihald gámsins var metið á talsvert meira en 75 milljónir króna en þegar hefur utanríkisráðuneytið staðfest að allar greiðslur frá tryggingafélögum vegna málsins hafi verið dregnar frá þeirri upphæð sem tjónið var metið á þegar ákvörðun var tekin um greiðslu tjónabótanna. „Samið var um ákveðið mat á virði þess og var það dregið frá bótunum,“ segir Pétur um málið. Heimildir DV herma að búslóðin hafi verið tryggð fyrir minnst 7,5 milljónir króna en það hefur þó ekki fengist staðfest.
Pétur staðfestir þá einnig að enginn á vegum fyrirtækisins Könnunar ehf. sem mat virði innihald gámsins fyrir hönd ríkisins fór til Bandaríkjanna til að meta tjónið. DV greindi frá því í morgun að unnið hefði verið út frá myndum sem teknar voru fyrir og eftir slysið þegar fyrirtækið mat hversu umfangsmikið tjónið var. Hann segir að ekki hafi verið talin þörf á að senda neinn út þar sem nákvæmar upplýsingar lægju fyrir um hvað hefði verið um borð í gámnum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
