ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Ótækt að aðstoðarmenn ráðherra séu á kafi í hlutabréfaviðskiptum

Björn Ingi skuldsetti Caramba um hundruð milljóna
10:00 › 15. desember 2011
Jón Ólafsson siðfræðingur segir ótækt að aðstoðarmenn ráðherra séu á kafi í hlutabréfaviðskiptum og skuldum.

Jón Ólafsson siðfræðingur segir ótækt að aðstoðarmenn ráðherra séu á kafi í hlutabréfaviðskiptum og skuldum. Samsett mynd: DV

Jón Ólafsson, prófessor í heimspeki við Háskólann á Bifröst og formaður samhæfingarnefndar um siðferðileg viðmið í stjórnsýslunni, segir aðspurður að ótækt sé að aðstoðarmenn ráðherra séu á kafi í hlutabréfaviðskiptum og hafi stefnt sér í miklar skuldir vegna þeirra. Hann segir jafnframt að almennt séð sé ekki hægt að líta svo á að það sem er ekki bannað sé þar með í lagi.

Í DV í dag er sagt frá hinu skuldsetta eignarhaldsfélagi Caramba – hugmyndir og orð ehf., sem er í eigu Björns Inga Hrafnssonar og fyrrverandi eiginkonu hans. Fjórir kröfuhafar hafa lýst um 700 milljóna króna kröfum í þrotabú félagsins

Caramba var tekið til gjaldþrotaskipta í september. Björn Ingi er núverandi eigandi og stjórnarformaður vefmiðilsins Pressunnar en var áður borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík og þar áður aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar, formanns Framsóknarflokksins.

Orðrétt segir Jón í DV í dag: „Ég ætla ekki að tjá mig um Björn Inga sérstaklega, en það blasir við að þeir sem starfa innan stjórnsýslunnar, hvort sem þeir eru ráðnir sem pólitískir aðstoðarmenn eða almennt til starfa í ráðuneytum, þurfa að beita dómgreind sinni þegar þeir velta fyrir sér mögulegum hagsmunaárekstrum, þeir geta ekki litið svo á að hvaðeina sé í lagi sem ekki er bannað með lögum. Það er sérstaklega mikilvægt í stjórnsýslunni að starfsmenn hennar þekki og taki tillit til siðferðilegra viðmiða hvort sem þau eru skráð eða óskráð. Oft vakna spurningar og álitamál sem krefjast þess að fólk hugsi málin, ræði þau við samstarfsfólk eða skoði þau út frá siðareglum, ef þær eru til. Á endanum verða allir þó fyrst og fremst að treysta á og nota dómgreind sína. Það ætti til dæmis ekki að þarfnast langrar umhugsunar eða rökræðna að sjá að það er ótækt að forsætisráðherra hafi aðstoðarmann sem er á kafi í hlutabréfaviðskiptum og búinn að taka á sig miklar skuldir vegna þeirra.“

Nánar má lesa um málið í DV í dag

Krefja Caramba Björns Inga um 700 milljónir

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?