ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Töpuðu 550 milljónum á útrásinni til Rúmeníu

Félag í eigu Karls Wernerssonar fjárfesti í landi í Búkarest
07:15 › 13. desember 2011
Nærri 14 milljónir evra. Hollenskt eignarhaldsfélag sem Fundeni átti 40 prósenta hlut í fékk nærri 14 milljónir evra lánaðar hjá rúmenskum banka til að kaupa landsvæði í Búkarest, höfuðborg landsins. Karl Wernersson var stærsti eigandi Fundeni.

Nærri 14 milljónir evra. Hollenskt eignarhaldsfélag sem Fundeni átti 40 prósenta hlut í fékk nærri 14 milljónir evra lánaðar hjá rúmenskum banka til að kaupa landsvæði í Búkarest, höfuðborg landsins. Karl Wernersson var stærsti eigandi Fundeni. Samsett mynd: DV

Einu af eignarhaldsfélögum Karls Wernerssonar í Milestone, Fundeni ehf., hefur verið slitið og skilanefnd skipuð yfir félagið. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu. Félagið stundaði fjárfestingar í Rúmeníu í gegnum hollenskt eignarhaldsfélag og tapaði nærri 550 milljónum króna árið 2008. Aðrir hluthafar félagsins voru fjárfestingarbanki Milestone, Farma ltd., Askar Capital, SJ1 sem var dótturfélag Sjóvár, og Anna Wernersdóttir, systir Karls.

Í ársreikningi Fundeni ehf. fyrir árið 2008 kemur fram að félagið hafi átt 40 prósenta hlut í hollenska eignarhaldsfélaginu De Barte Gelderland B.V. Hlutafé þess félags, sex milljónir evra eða rúmlega milljarður króna, hafði verið skrúfað niður í 0, að því er segir í ársreikningnum, og var hlutur Fundeni í félaginu því lítils virði eftir árið 2008.

De Barte Gelderland á svo aftur rúmenska félagið Downtown International en það félag á 45.000 fermetra landsvæði í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu. Félagið skuldar rúmenska bankanum, Banca Comerciale Romania, 13,8 milljónir evra, rúmlega tvo milljarða

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?