Utanríkisráðuneytið vill ekki gefa neinar upplýsingar um hvað nákvæmlega var í gámnum sem ríkið hefur samþykkt að greiða 75 milljónir króna í bætur fyrir. Innihald gámsins var í eigu Skafta Jónssonar, starfsmanns í bandaríska sendiráðinu.
Aðeins hefur komið fram að í gámnum hafi verið listaverk eftir nokkra íslenska listamenn.
Einu upplýsingarnar sem utanríkisráðuneytið vill veita um þessa háu tjónabætur er að ríkið taki ábyrgð á búslóðaflutningi einstakra starfsmanna og að samkvæmt mati matsfyrirtækisins Könnunar hf. hafi innihald gámsins verið 75 milljóna króna virði. Gámurinn var á leið frá Íslandi til Bandaríkjanna þegar innihald hans skemmdist þegar sjór flæddi inn í gáminn. Höskuldur Þórhallsson þingmaður gagnrýnir að ríkið tryggi svo verðmætar búslóðir.
Þrátt fyrir tilraunir DV til að fá svör frá utanríkisráðuneytinu hefur ekkert verið gefið uppi um nákvæmt innihald gámsins. Skattgreiðendur virðast því þurfa að taka því þegjandi og hljóðalaust að borga tugmilljóna króna tjónabætur vegna einhvers sem ekki fæst uppgefið hvað var. DV leitaði eftir viðbrögðum frá Skafta Jónssyni, eiganda búslóðarinnar, en hann hafði ekki svarað fyrirspurn blaðamanns þegar blaðið fór í prentun á sunnudag. Það má því segja að gámurinn hafi verið sveipaður eins konar leyndarhjúp.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
