ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Fær rúma milljón frá Fylki fyrir að stökkva yfir steinvegg

Féll tæpa fjóra metra niður á steinsteypta stétt og fór í hjartastopp
16:12 › 9. nóvember 2011

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Íþróttafélagið Fylki til að greiða 29 ára karlmanni rúmlega 1.100 þúsund krónur í skaðabætur vegna tjóns sem hann varð fyrir þegar hann stökk yfir steinvegg við félagsheimili Fylkis.

Maðurinn var á leið á dansleik í Fylkisheimilinu þann 25. september árið 2005 eftir að hafa verið í samkvæmi í heimahúsi. Maðurinn fór gangandi þaðan á dansleikinn en virðist hafa ætlað að stytta sér leið með því að stökkva yfir steinvegginn sem frá honum séð virtist aðeins vera 72 sentímetra hár. Hinum megin við vegginn reyndist hins vegar vera 3,82 metrar niður á steinsteypta stétt og þangað féll maðurinn niður. Er sjúkrabifreið kom á vettvang var maðurinn í hjartastoppi og andaði ekki. Lífgunartilraunir báru árangur og var hann farinn að anda á ný þegar á slysadeild var komið.

Varanleg örorka mannsins var metin fimm prósent eftir slysið.

Maðurinn byggði mál sitt á því að hann bæri enga sök á tjóni sínu heldur mætti rekja slysið eingöngu til vanbúnaðar í nánasta umhverfi Fylkisheimilisins.

Íþróttafélagið krafðist sýknu og benti meðal annars á að maðurinn hafi verið ölvaður á ferð í svartamyrkri og algjörlega ókunnugur umhverfinu þegar hann hafi án fyrirvara tekið af rás frá samferðamönnum sínum og stokkið yfir vegginn. Var því um það deilt hvort maðurinn bæri meðábyrgð á tjóninu sem hann varð fyrir.

Íþróttafélagið viðurkenndi að hafa borið ábyrgð á ¾ hlutum tjónsins en þótti rétt að maðurinn bæri ábyrgð á hinu.

Dómari málsins komst að því að maðurinn gæti ekki talist hafa sýnt af sér slíkt gáleysi að skerða ætti bætur til hans.

Var Fylki gert að greiða manninum 1.158.554 krónur með 4,5% vöxtum af 281.680 krónum frá 25. september 2005 til 25. mars 2006 en af 1.158.554 krónum frá þeim degi til 23. ágúst 2010, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi til greiðsludags.

Þá var Fylki gert að greiða manninum 650 þúsund krónur í málskostnað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?