Eineltismál verða ekki leyst með yfirlýsingum í fjölmiðlum, segir í tilkynningu SAMFOK. Myndin er sviðsett.
„Eineltismál verða ekki leyst með þöggun og/eða aðgerðarleysi. Þau verða heldur ekki leyst með yfirlýsingum í fjölmiðlum. En foreldri sem komið er að þrotum og sendir neyðarkall til fjölmiðla vegna eineltis í garð barns síns á kröfu á að á að hlýtt verði á mál þess.“ Þetta er á meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu sem SAMFOK – Samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík – hafa sent frá sér.
Yfirlýsingin er send í kjölfar umræðu um eineltismál sem hefur verið mikil að undanförnu vegna umfjöllunar fjölmiðla. Þar segir ennfremur að tryggja verði að ekki séu skapaðar aðstæður þar sem andfélagsleg hegðun eða ofbeldi fær þrifist, „til dæmis utan hefðbundinna kennslustunda þar sem kennarar eða aðrir fullorðnir eru ekki til staðar, svo sem í frímínútum, ferðum í og úr sundi og húsakynnum skóla en kannanir hafa sýnt að við slíkar aðstæður sé ofbeldi einkum beitt.“
Fram kemur að það hljóti að vera grundvallarmannréttindi barna ekki síður en fullorðinna á vinnustöðum að stjórnendur bregðist við einelti og tryggi viðunandi úrlausn ofbeldismála. Þá sé þarft að huga að regluverki um þetta eins og þekkt er úr vinnulöggjöf sem snýr að vinnustöðum fullorðinna. Af tilkynningunni að dæma er ljóst að foreldrar vilja grípa til ákveðinna aðgerða þegar kemur að eineltismálum í skólum. Mikil umræða um einelti hefur vakið fólk til umhugsunar um hvaða leiðir séu færar til þess að takast á við slík mál.
„Einelti er grafalvarlegt samfélagsmein og ofbeldi sem ekki á að líðast,“ segir meðal annars í tilkynningunni. „Þegar eineltismál koma upp er nauðsynlegt að brugðist sé við þeim eins fljótt og auðið er á þeim vettvangi sem til þeirra er stofnað.“ Þá segir að trúnaður kennara megi aldrei verða til þess að hindra úrlausn eineltismála. „Þegar alvarleg eineltismál koma upp verða skólar að upplýsa foreldra um þær aðgerðir sem nauðsynlegt er að grípa til. Aðeins þannig getur foreldrahópurinn, í samvinnu við skólann, lagst á eitt við að útrýma vandanum. Aðeins með því að ræða hispurslaust um þessi mál verða þau upprætt.“
Í tilkynningunni segir að það sé grundvallaratriði að skólar axli ábyrgð á samskiptum barna í skólanum en leiði ekki hjá sér neikvæð samskipti þeirra eða skirrist við að láta foreldra vita af samskiptavanda í hópum barna þeirra. Í þessu sambandi geti verið vert að huga að stjórnun stofnana sem annast börn, bæði skóla og frístundaheimila og leiðtogafærni stjórnenda þeirra, þar á meðal færni þeirra til að skapa vinnustað þar sem öllum líður vel.
Allir grunnskólar eigi að hafa eineltisáætlanir og sé ætlað að vinna eftir þeim. „Fagurlega orðaðar eineltisáætlanir geta gefið foreldrum falskt öryggi því þær eru aðeins orð á blaði þar til þeim er hrint í framkvæmd – og viðhaldið.“ Skólaráðum skólanna er ætlað að fylgjast með að það sé gert með fullnægjandi hætti. Þá segir að ef skólar eru ekki að sinna þessu hlutverki sínu beri að tilkynna það til skólanefnda sveitafélaga og/eða Mennta- og menningamálaráðuneytis.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
